Takist áform hans leiða þau til grundvallarbreytinga í brezku efnahagslífi

Ríkisstjórn Camerons í Bretlandi hefur tekið allt aðra stefnu í ríkisfjármálum heldur en ríkisstjórn Obama í Bandaríkjunum. Á miðvikudag í næstu viku mun hin nýja ríkisstjórn Bretlands gera grein fyrir tillögum sínum um niðurskurð í opinberum útgjöldum á næstu árum og er talið, að þær tillögur feli í sér meiri niðurskurð útgjalda en Margrét Thatcher beitti sér fyrir í upphafi níunda áratugarins. Þetta er allt önnur stefna en Obama hefur markað, sem byggir á mun hægari niðurskurði opinberra útgjalda en stefnt er að í Bretlandi.
Meðal þess, sem talið er að brezka ríkisstjórnin muni kynna í næstu viku eru áform um að leggja niður 192 stjórnarstofnanir. Talið er að tillögur ríkisstjórnar Cameons muni þýða að 600 þúsund opinberir starfsmenn í Bretlandi missi vinnu sína fram til ársins 2015.
Þess ber hins vegar að geta í samanburði á milli Bretlands og Bandaríkjanna að talið er að 51,5% af vergri landsframleiðslu Bretlands eigi rætur að rekja til opinberra umsvifa en sambærileg tala í Bandaríkjunum er 41% og meðaltalið í ESB-ríkjum er 50,7%.
Á móti þessum miklu niðurskurðaraðgerðum stefnir Cameon að því að örva og hvetja einkageirannn m.a. með skattalækkunum til nýrra átaka og fjölgunar starfsmanna, ekki sízt í norðurhluta Englands, þar sem atvinnuleysi er mun meira en í suðurhluta landsins og tekjur á mann mun lægri. Þar eru m.a. hugmyndir um að byggja upp orkufyrirtæki, sem byggist á vindorku.
Frá þessu er sagt í Wall Street Journal í dag, sem segir, að heppnist þessi áform Camerons muni það hafa í för með sér grundvallarbreytingu á brezku efnahagslífi og styrkja stöðu Íhaldsflokksins. Mistakist þau muni nýtt samdráttarskeið ganga yfir Bretland með auknu atvinnuleysi.
Evruland er nýlenda Þýskalands
Nú þegar evran er að ná inn á á annan tuginn í vegferð sinni er margt að opinberast og raungerast með öðrum hætti en væntingar stóðu upphaflega til . Flest sem bendir nú til þess að hún muni ekki ná því að fylla tvo tugi og líði undir lok nú á næstu árum. Það dauðastríð mun ekki taka langa...
Þrír fyrrverandi framkvæmdastjórar Saab handteknir - grunaðir um skattsvik
Þrír fyrrverandi framkvæmdastjórar Saab-bílasmiðjunnar í Svíþjóð hafa verið handteknir í Svíþjóð vegna gruns um bókhaldsbrot. Olof Sahlgren saksóknari telur að þremenningarnir hafi gerst sekir um alvarlegar tilraunir til að skjóta sér undan skattayfirvöldum.
Finnland: Verður rússneska opinbert tungumál minnihluta
Nú eru um 62 þúsund rússneskumælandi í Finnlandi en gert er ráð fyrir að þeir verði orðnir um 240 þúsund árið 2050. Þetta þýðir að á 40 árum verða rússneskumælandi Finnar jafnmargir og sænskumælandi Finnar eru í dag. Fjöldi rússneskumælandi Finna hefur tvöfaldast á einum áratug. Hér er átt við fólk,...
ESB: Frakkar verða að breyta um stefnu eða sæta refsiaðgerðum ella segir fulltrúi Þýzkalands
Fulltrúi Þýzkalands í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, Guenther Oettinger, sagði í gær að Frakkar yrðu að koma fram umbótum á lífeyriskerfi sínu og frelsisvæða vinnumarkað sinn eða horfast í augu við refsiaðgerðir af hálfu ESB. Í síðustu viku veitti ESB Frakklandi tveggja ára frest til að koma fj...