Sunnudagurinn 19. maí 2013

Ánamaðkur veldur usla í forsetaveislu í Kreml


15. október 2010 klukkan 22:44

Í kvöldverðarboði til heiðurs Christian Wulff, forseta Þýskalands, í Kreml þriðjudaginn 12. október bar það til tíðinda, að gestur sá ánamaðk skríða á salatdisknum sínum. Hann setti mynd af honum á Twitter og er nú í vandræðum.

Þessa mynd segist rússneski landstjórinn hafa tekið í forsetaveislunni í Kreml.

Dmitri Zelenin, landstjóri Tver Obslat héraðinu, tók mynd af maðkinum, þegar hann skreið yfir diskinn hjá honum og sagði síðan með henni á Twitter-síðunni síðar: „Svona getur meira að segja gerst í Alexandrovskij salnum. Með kjötinu færðu kál með ormum.“

Daginn eftir veisluna var Zelenin kallaður fyrir Sergei Prikhodko, helsta ráðgjafa Kremlverja um utanríkismál, sem ávítaði hann og sagði, að setja ætti lög um brottrekstur landstjóra fyrir heimsku, svo að ekki sé minnst á ábyrgðarleysi og fíflagang. Zelenin var fljótur að fjarlægja færsluna og myndina af Twitter. Yfirmatreiðslumaður Kremlar, Anatolij Galkin, sagði við verfsíðuna Lifenews.ru, að ekkert væri borið á borð í Kreml, án þess að vera grandskoðað. Sagði hann það „bull“ í Zelnin, að hann hefði fundið maðk á disknum sínum.

Heimild: Spiegel Online

 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Eftir Harald Benediktsson Pistill

ESB-aðlögun: Virka peningarnir?

Eitt af því sem fylgdi umsókn Íslands um aðlögun að ESB, var að hér mætti ástunda flest það sem mögulegt væri til að auka stuðning við aðild. Athyglisvert er að íslensk stjórnvöld óskuðu sérstaklega eftir aðstoð við að sannfæra landsbúa um ágæti aðildar. Sem segir að stjórnvöld höfðu ekki trú á að þau „tækifæri“ sem fælust í aðild dygðu til að sannfæra landsmenn.

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Merkel á löngum einkafundi með Frans páfa

Angela Merkel Þýskalandskanslari ræddi í 45 mínútur við Frans páfa á einkafundi laugardaginn 18. maí,. Fréttastofan Deutsche Welle segir að óvenjulegt sé að einkafundir með páfa séu svo langir. Merkel er leiðtogi kristilegra demókrata í Þýskalandi þar sem kaþólskir kjósendur skipta miklu. Merkel er ...

Ítalir efna til fjöldamótmæla í Róm - Merkel líkt við nasistaforingja

Um 100.000 manns mótmæltu í Róm laugardaginn 18. maí. Forystumenn verkalýðs­samtaka stjórnuðu aðgerðunum undir rauðum fánum og markmið þeirra var að knýja fram stefnubreytingu hjá nýrri ríkis­stjórn landsins undir forsæti Enricos Letta sem kemur úr röðum vinstri manna. Þá einkenndust mótmælin einnig a...

ESB setur reglur um ólívuolíu á borðum veitingastaða - aðeins í verksmiðjumerktum flöskum

Víða á veitingastöðum á meginlandi Evrópu, í Bretlandi og hér á landi er borin var ólívuolía í litlum flöskum eða henni er hellt á skálar, hún er græn eða jafnvel gyllt á litinn og erlendis tíðkast víða að eigendur veitingastaða semji við ólívubændur beint um kaup á framleiðslu þeirra.

Alaska Dispatch: Eiga Grænland og Færeyjar að fá sjálfstæða aðild að Norðurskautsráðinu?

Mia Bennett, sem fjallar um málefni Norðurslóða m.a. á vefmiðlinum Alaska Dispatch segir að nú beinist athyglin í málefnum Norðurskautsráðsins að því, hvort Grænland og Færeyjar eigi að fá sjálfstæða aðild að ráðinu með sama rétt og aðrir meðlimir þess eða endurheimta stóla við borðið á fundum þess....

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS