Merwyn King, aðalbankastjóri Englandsbanka, sagði á fundi í New York í gær, að lánardrottnar banka yrðu í framtíðinni að bera meiri áhættu og axla útlánatöp og bætti því við að fjármagna yrði banka í ríkara mæli með eigin fé fremur en skammtímaskuldum. Englandsbankastjóri ræddi einnig aðskilnað viðskiptabanka og fjárfestingarbanka og sagði, að ef innistæður ættu að vera tryggðar að fullu, væri eina leiðin til þess sú, að skilja á milli innistæðna og áhættustarfsemi. King sagði ennfremur að með þeirri einföldu aðferð að skilja þessa starfsemi að yrði erfiðara fyrir banka að komast fram hjá settum reglum.
Um allan heim er unnið að því að setja strangari reglur um bankastarfsemi. Talsmenn alþjóðlegra banka hafa sagt að slíkar reglur kæmu í veg fyrir aukinn hagnað og atvinnusköpun fjármálafyrirtækja. Merwyn King sagðist ekkert gera með slíkar röksemdir. Hagnaður þjóðfélaga af öruggu fjármálakerfi, sem væri í fullu jafnvægi væri miklu meiri.
Bankastjórinn sagði að fjármálakreppan hefði leitt til þess að komandi kynslóðir mundu axla byrðar vegna hennar. Við megum ekki líka skilja eftir okkar arfleifð ótryggrar og áhættusamrar bankastarfsemi sagði hann.
+Hér birtist í heild bréf sem Víglundur Þorsteinsson afhenti í Alþingishúsinu mánudaginn 10. febrúar. Áður hafði Víglundur skrifað Einari K. Guðfinnssyni forseta Alþingis um sama efni.+ Bréf til stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis, Hr. formaður Ögmundur Jónasson Í framhaldi af b...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.