David Cameron, forsætisráðherra Breta liggur undir mikilli gagnrýni í Íhaldsflokknum fyrir að fallast á 2,9% hækkun útgjalda ESB á næsta ári. Cameron hafði áður sagt að annað hvort yrði að frysta útgjöld ESB við núverandi stöðu eða skera niður útgjöld. Framkvæmdastjórnin og Evrópuþingið hafði krafizt 5,9% hækkunar. Þessi málamiðlun þýðir, að Bretar þurfa að borga 430 milljónir sterlingspunda til viðbótar til ESB.
Tebbit lávarður, sem hefur verið einn mesti áhrifamaður í Íhaldsflokknum síðustu áratugi líkti ákvörðun Camerons við það, þegar Bretar hefðu samþykkt að borga kostnað vegna frönsku Vichy-stjórnarinnar, sem var leppstjórn Þjóðverja í heimsstyjöldinni síðari í Frakklandi. Daniel Hannan, sem situr á Evrópuþinginu fyrir Íhaldsflokkinn spurði hvers vegna Bretar ættu að samþykkja nokkra hækkun þegar 27 aðildarríki ESB væru öll að skera niður kostnað hjá sér.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.