Mánudagurinn 27. júní 2022

Grískir öfgamenn til vinstri senda böggla-sprengju til Sarkozys


1. nóvember 2010 klukkan 20:22

Nicolas Sarkozy, Frakklandsforseti, var meðal þeirra sem átti að fá eina af fjórum böggla-sprengjum, sem fundust í Aþenu mánudaginn 1. nóvember að sögn grísku lögreglunnar.

Sprengja sem átti að fara í sendiráð Mexíkó í Aþenu, sprakk í skrifstofum flutningafyrirtækis og særði starfsmann þar. Hinar tvær áttu að fara í sendiráð Belgíu og Hollands í borginni.

Franska forsetaembættið
Nicolas Sarkozy

Gríska lögreglan hefur handtekið tvo menn, 22 og 24 ára vegna málsins. Öfgamenn til vinstri hafa beint spjótum sínum gegn grísku ríkisstjórninni og lögreglunni, sem segir, að hún tengi böggla-sprengjurnar í Aþenu ekki við al-Kaída.

Böggullinn sem sprakk vakti grunsemdir hjá konu sem starfaði hjá flutningafyrirtækinu. Hún hafði kastað honum í gólfið og þar sprakk hann.

Þegar lögreglan kom í annað flutningafyrirtæki til að kanna böggulinn til hollenska sendiráðsins, sá hún tvo vopnaða menn með hárkollur og skotheld vesti á biðstöð strætisvagna og handtók þá.

Annar hinna handteknu er talinn vera í hópi stjórnleysingja, sem liggur undir grun um að standa að baki árásum með illa gerðum sprengjum og íkveikjum. Vinstrisinnar voru taldir standa að baki böggla-sprengju, sem sprakk í júní og varð nánum samstarfsmanni ráðherra gegn hryðjuverkum í grísku ríkisstjórninni.

Heimild: BBC

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS