Föstudagurinn 22. janúar 2021

Urður segir Angelu misskilja EUobserver


18. nóvember 2010 klukkan 21:44

Urður Gunnarsdóttir, fjölmiðlafulltrúi utanríkisráðuneytisins, telur að Angela Filota, fjölmiðlafulltrúi stækkunarskrifstofu ESB, hafi misskilið spurningu EUobservers um þær reglur, sem bindi Íslendinga í aðildarviðræðunum við ESB.

Utanríkisráðuneytið
Erlendir blaðamenn á fundi í utanríkisráðuneytinu.

Á mbl.is er 18. nóvember leitað svara hjá Urði vegna þess að á Evrópuvaktinni hafi komið fram að svar Angelu Filotu við spurningum EUobserver stangist á við svar utanríkisráðuneytisins við fyrirspurn Evrópuvaktarinnar. Ráðuneytið sagði við Evrópuvaktina að Ísland væri óbundið af viðræðuramma ESB, þar væri um einhliða yfirlýsingu að ræða.

„Vera má að talskona stækkunarstjórans hafi átt við málsmeðferðarreglur fyrir ríkjaráðstefnur framtíðarinnar, sem gert var ráð fyrir að yrðu samþykktar á fundinum en var reyndar frestað,“ sagði Urður Gunnarsdóttir, fjölmiðlafulltrúi utanríkisráðuneytisins, þegar mbl.is leitaði skýringa á málinu.

Urður segir að hvorki fulltrúar Íslands né ESB hafi samþykkt yfirlýsingar hvor annars á ríkjaráðstefnunni í júlí. Hins vegar hafi Ísland lýst yfir því að yfirlýsing ESB yrði höfð til hliðsjónar (e. „take note of“), sem væri ekki samþykki.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS