Mánudagurinn 25. janúar 2021

Hugveita um aðstoð við Íra: Örvæntingarfull tilraun til að bjarga evrunni


22. nóvember 2010 klukkan 09:55

George Osborne

Bretar munu leggja fram 7 milljarða punda í björgunarsjóð ESB/AGS vegna Írlands, þótt þeim beri ekki skylda til þar sem Bretland er ekki aðild að evrunni. Þessi ákvörðun ríkisstjórnar Cameron er gagnrýnd innan Íhaldsflokksins og víðar. George Osborne, fjármálaráðherra Breta, hefur varið þátttöku Breta með því að það sé Bretum í hag að koma vinum sínum Írum til aðstoðar. Áhrifamikill þingmaður Íhaldsflokksins, John Redwood, hefur hins vegar verið mjög gagnrýninn á þessa ákvörðun, og segir að að björgun Íra sé ekki vandamál Breta. Annar þingmaður hefur sagt, að eigi Bretar að koma Írum til aðstoðar ætti sú aðstoð að vera fólgin í því að hjálpa þeim að komast út úr evrunni.

Adam Smith Institue segir, að björgun sé aðgerð fyrir Evrópusambandið og evrusvæðið, ekki í þágu Bretlands eða Írlands. Talsmaður hugveitunnar segir, að björgunin sé örvæntingarfull aðgerð ESB til að bjarga evrusvæðinu.

Þetta kemur fram í Daily Telegraph í dag.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Bólgan vex en hjaðnar samt

Nú mæla hagvísar okkur það að atvinnuleysi fari vaxandi og jafnframt að verðbólgan færist í aukana. Það er rétt að atvinnuleysið er að aukast og er það í takt við aðra hagvísa um minnkandi einkaneyslu, slaka í fjárfestingum og fleira. Það er hinsvegar rangt að verðbólgan sé að vaxa.

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS