Þriðjudagurinn 26. janúar 2021

Sendiherra Íslands bjartsýnn eftir makrílfund með Damanaki sjávar­útvegs­stjóra


22. desember 2010 klukkan 22:55
ESB
Maria Damanaki, sjávarútvegsstjóri ESB, og Stefán Haukur Jóhannesson, sendiherra Íslands, ræða makríldeiluna á fundi 22. desember 2010

Þriðjudaginn 21. desember fögnuðu skoskir stjórnmálamenn því að Maria Damanaki, sjávarútvegsstjóri ESB, ætlaði að láta athafnir fylgja hótunum sínum í garð Íslendinga vegna makrílveiða. Hún væri að undirbúa löndunarbann. Miðvikudaginn 22. desember segir Stefán Haukur Jóhannesson, sendiherra gagnvart ESB og formaður viðræðunefndar Íslands um aðild að ESB, að Maria Damanaki ætli að „beita sér fyrir lausn makríldeilu Íslands og sambandsins.“

Ummæli sendiherrans birtust á ruv.is 22. desember eftir fund hans með Damanaki. Taldi Stefán Haukur, að viðhorf Damanaki gæfu skýra vísbendingu um aukinn skilning Evrópusambandsins á sjónarmiðum Íslendinga í makríldeilunni.

Á ruv.is sagði að Stefán Haukur hafi óskað eftir fundi með Damanaki til að kynna henni sjónarmið Íslands og ákvarðanir um 147.000 tonna makrílkvóta árið 2011. Á ruv.is segir:

„Stefán segir fundinn hafa verið afar jákvæðan og framkvæmdastjórinn ætli að beita sér fyrir lausn deilunnar. Hann segist telja að þetta gefi skýra vísbendingu um að Evrópusambandið sé fyrir sitt leyti tilbúið að skoða breyttar kringumstæður sem Íslendingar hafi mjög haldið á lofti, þ.e.a.s. að göngumynstur makríls hafi breyst verulega. Þá skipti miklu máli hversu mjög makríllinn í íslensku lögsögunni sé þyngri en sá sem hafi verið þar áður. Ekki sé hægt að horfa framhjá því í þeirri stöðu sem nú sé uppi og það verði að taka tillit til þessara sjónarmiða í framhaldi þessara viðræðna.

Stefán segir of snemmt fyrir Íslendinga að fagna sigri í deilunni, ekki hafi verið um eiginlegar samningaviðræður að ræða. Honum hafi hins vegar þótt Damanaki hlusta vel á rök Íslanda og ekki gert ágreining úr þeim sjónarmiðum sem hann hafi sett fram. Stefán segir að í framhaldinu voni hann að Evrópusambandið sé tilbúið til þess að sýna meiri sveigjanleika en ekki beri að fagna of snemma.“

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS