Föstudagurinn 23. apríl 2021

Verðbólga er að aukast í evrulöndum


9. janúar 2011 klukkan 06:00

Monika Flueckige
Jean-Claude Trichet

Verðbólga á evrusvæðinu er komin í 2,2% og þar með yfir þau 2% viðmiðunarmörk, sem Seðlabanki Evrópu hefur sett. Þetta hefur ekki gerzt í tvö ár. Talið er að lágir stýrivextir og greiður aðgangur banka að lausafé eigi mestan þátt í því að verðbólga er að aukast á ný í evrulöndum. Jean Claude Trichet varði hins vegar stefnu Seðlabankans á fundi með systurflokki Kristlegra demókrata í Bæjaralandi í fyrradag, föstudag, og benti á að verðabólga hefði verið lægri í Þýzkalandi eftir að evran kom til sögunnar en áratuginn áður.

Trichet er hins vegar gagnrýninn á að ríkisstjórnir evrulandanna hafa hafnað hugmyndum hans um að refsiaðgerðir taki sjálfkrafa gildi ef einstök ríki fara út fyrir þau mörk, sem þeim eru sett í efnahags- og fjármálum en í stað þess sé það stjórnmálamanna að taka ákvörðun um hvort refsingum verði beitt. Í Wall Street Journal nú um helgina kemur fram að Trichet geri sér vonir um að ná sínum sjónarmiðum fram.

Seðlabanki Evrópu hefur keypt skuldabréf Grikkja, Íra og Portúgala fyrir um 74 milljarða evra á undanförnum mánuðum og talið er hugsanlegt að bankinn þurfi enn að auka kaup á slíkum bréfum. Þessi kaup hafa verið gagnrýnd mjög í Þýzkalandi og þar er fremstur í flokki Axel Weber, bankastjóri Bundesbank, sem talinn er hugsanlegur eftirmaður Trichet, sem hættir síðar á þessu ári.

Á fyrrnefndum fundi sagði Trichet að ábyrg stefna í peningamálum gæti ekki komið í staðinn fyrir óábyrga stefnu ríkisstjórna einstakra evrulanda.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Bólgan vex en hjaðnar samt

Nú mæla hagvísar okkur það að atvinnuleysi fari vaxandi og jafnframt að verðbólgan færist í aukana. Það er rétt að atvinnuleysið er að aukast og er það í takt við aðra hagvísa um minnkandi einkaneyslu, slaka í fjárfestingum og fleira. Það er hinsvegar rangt að verðbólgan sé að vaxa.

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS