Sunnudagurinn 28. febrúar 2021

Bændablaðið: hjáleið notuð til að ríkið fái fjárstyrki frá ESB

Jón Bjarnason ekki upplýstur um styrki á sínu verksviði


17. janúar 2011 klukkan 15:14

Þrátt fyrir yfirlýsingar nokkurra ráðherra vinstri-grænna, þar á meðal Jóns Bjarnasonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, um að ekki verði þegnir aðlögunar- eða upplýsingastyrkir frá Evrópusambandinu á tíma aðildarviðræðna við það, er unnið að umsóknum um slíka styrki á verksviði sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins. Þetta kemur fram í Bændablaðinu frá 13. janúar, en þar segir að um tvo svonefnda TAIEX-styrki sé að ræða.

Jón Bjarnason sagði í samtali við Bændablaðið að hann hefði ekki vitneskju um að unnið væri að umsóknum um þessa tvo styrki, annars vegar vegna sérfræðiþjónustu við gerð landupplýsinga og hins vegar vegna greiðslustofu í landbúnaði. Áréttaði Jón í Bændablaðinu að sl. haust hefði hann sagt að „ekki yrði sótt um slíka styrki af hálfu hans ráðuneytis“ þá vísaði hann til samþykkta flokks Vinstri grænna.

Í Bændablaðinu segir að innan ríkisstjórnarinnar hafi náðst samkomulag um að aðalsamninganefnd Íslands og samningahópar geti haft frumkvæði að því að semja umsóknir um TAIEX styrki og beint því til utanríkisráðuneytisins að sækja um slíka styrki. Hins vegar hafi ekki náðst samkomulag á vettvangi ríkisstjórnarinnar um svokallaða IPA-styrki, sem fela í sér beinan fjárstuðning ESB til aðlögunar að ESB-reglum.

Haraldur Benediktsson, formaður Bændasamtaka Íslands, segir í leiðara Bændablaðsins í tilefni af þessum styrkjum:

„Embættismenn undirbúa umsóknir um styrki til að undirbyggja ESB-stjórnsýslu hér á landi, þrátt fyrir yfirlýsingar ráðherra um að ekki eigi að nota fjármuni ESB til þeirra verka. Hópar fólks eru fluttir úr landinu í klæðskerasaumaðar lúxus- og áróðursferðir. Þar er, að sögn, allt greitt og veitt vel.... Háskóli Íslands, eitt af sameiningartáknum þjóðarinnar, er á aldarafmæli sínu verktaki við að koma “réttum„ upplýsingum um ESB á framfæri.“

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS