Sunnudagurinn 24. janúar 2021

Verður brezkum bönkum skipt upp?


23. janúar 2011 klukkan 08:51

Hugsanlegt er að brezkum bönkum verði skipt upp þannig að almenn viðskiptabankastarfsemi og fjárfestingarbankastarfsemi fari ekki fram undir sama hatti. Þetta kemur fram í fréttum BBC og er haft eftir Sir John Vickers, formanni nefndar, sem er að endurskoða bankastarfsemi í Bretlandi.

Leiði starfsemi fjárfestingarbanka til falls þeirra yrðu þeir látnir falla án þess að hafa víðtækari áhrif á bankakerfið. Tekið er fram, að engar ákvarðanir hafi verið teknar um þetta efni.

Nefndin var sett upp af núverandi samsteypustjórn Íhaldsflokksins og Frjálsynda flokksins.

Ríkisstjórn Verkamannaflokksins bjargaði bæði Royal Bank of Scotland og Lloyds samsteypunni.

Nefndin er einnig ætlað að kanna hvort of mikil fákeppni sé í brezka bankaheiminum. Sex bankar ráða yfir 90% af öllum innistæðum í brezkum bönkum. Í Þýzkalandi ráða 7 bankar yfir 68% af þeim markaði og í Bandaríkjunum ráða átta stærstu bankar yfir 35% af öllum innistæðum.

Nefndinni er einnig ætlað að fjalla um hvort þak eigi að setja á heimildir banka til fjárfestinga á eigin fé.

Gert er ráð fyrir að nefndin skili tillögum sínum í september n.k.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Bréf Víglundar til stjórnskipunar- og eftirlits­nefndar: Leynimakk við kröfuhafa á svig við neyðarlögin

+Hér birtist í heild bréf sem Víglundur Þorsteinsson afhenti í Alþingis­húsinu mánudaginn 10. febrúar. Áður hafði Víglundur skrifað Einari K. Guðfinnssyni forseta Alþingis um sama efni.+ Bréf til stjórnskipunar- og eftirlits­nefndar Alþingis, Hr. formaður Ögmundur Jónasson Í framhaldi af b...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS