Þriðjudagurinn 26. janúar 2021

Stefán Haukur lýsir bjartsýni um aðild Íslands á ESB-fundi í Brussel


29. janúar 2011 klukkan 18:50

Stefán Haukur Jóhannesson, formaður ESB-viðræðunefndar Íslands, sagði á fundi með fiskveiðinefnd ESB-þingsins 25. janúar í Brussel að stuðningur Íslendinga við aðild að ESB héldist „sterkur“ („remains strong“), eins of Martin Banks blaðamaður The Parliament orðar það. Vísaði Stefán Haukur þar í skoðanakönnun sem birtist í Fréttablaðinu mánudaginn 24. janúar sem sýndi að 65% styddu að niðurstaða fengist í ESB-aðildarviðræðunum.

Stefán Haukur sagði:

Stefán Haukur Jóahnnesson

Samkvæmt nýjustu skoðanakönnun sögðust nær 90% aðspurðra að þeir hefðu gert upp hug sinn hvort halda ætti áfram viðræðum eða ekki, og af þeim eru tveir þriðju þeirrar skoðunar að ljúka eigi viðræðunum og samningurinn skuli borinn undir þjóðina í atkvæðagreiðslu.

Þetta gefur til kynna að Íslendingar hafi áhuga á að ganga í ESB á réttum forsendum.

Þá sagði Stefán Haukur að aðildarviðræðurnar væru „á réttri leið og miðaði vel“. Íslendingar litu í mörgu tilliti á sig sem hluta hinnar evrópsku fjölskyldu. Hann sagðist vona að sjávarútvegsmál yrðu ekki þröskuldur á leið Íslands til aðildar.

Í The Parliament segir jafnframt frá því að Kolbeinn Árnason, formaður viðræðuhóps Íslands um sjávarútvegsmál, hefði talið að ýmsar „tiltölulega miklar hindranir“ blöstu við hópnum á aðildarleiðinni. „Það er mikilvægir þættir í sameiginlegri sjávarútvegsstefnu ESB sem við getum ekki samþykkti,“ sagði Kolbeinn. „Ákvæðin um brottkast eru til dæmis óaðgengileg fyrir okkur.“

Morten Jung-Olsen, yfirmaður Íslandseiningar innan stækkunardeildar ESB, viðurkenndi að sjávarútvegur væri „viðkvæmt“ mál en hann sagði að lagt yrði „faglegt og hlutlægt“ mat á hæfni Íslands til að ganga í ESB. Hann sagði að framkvæmdastjórnin vonaði að opna formlega fyrsta kaflann, stefnukaflann,í aðildarviðræðunum undir lok forsætistíma Ungverja það er fyrir 1. júlí 2011.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS