Laugardagurinn 28. maí 2022

Strauss-Khan: Uppsveifla á ótraustum grunni


2. febrúar 2011 klukkan 10:59

Dominique Strauss-Kahn

Samkvæmt fréttum í Daily Telegraph hefur Dominique Strauss-Khan, forstjóri Alþjóða gjaldeyrissjóðsins varað við því að efnahagsleg uppsveifla á heimsvísu geti verið á ótraustum grunni byggð. Hann bendi á að ríku þjóðirnar séu fastar í atvinnuleysi en rísandi efnahagsveldi eins og Kína, Indland og Brazilía standi frammi fyrir hættu á ofhitnun efnahagskerfisins. Óeirðir í ríkjum Norður-Afríku geti verið vísbending um hvað gerist þegar 400 milljónir ungmenna komi á vinnumarkaðinn á næstu tíu árum.

Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn hafi birt skýrslu þar sem rök eru færð fyrir því að mikill ójöfnuður á milli ríkra og fátækra sé grundvallar orsökin fyrir fjármálakreppunni 2008-2009. Í skýrslunni er talið nauðsynlegt að launþegar nái á ný samningsstöðu gagnvart fjármagnseigendum og í því sambandi er hvatt til skattaumbóta og skuldaeftirgjafar gagnvart launþegum.

Strauss-Khan telur að jafnvægisleysi í viðskiptum geti leitt til nýrrar fjármálakreppu og bendir sérstaklega á Kína og Þýzkaland sem syndaseli, sem nái fram hagvexti á kostnað annarra ríkja. Blaðið segir að með skýrslunni sé sjóðurinn að taka afstöðu með Bandaríkjunum í því gjaldmiðlastríði, sem sé á ferð undir yfirborðinu.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Bólgan vex en hjaðnar samt

Nú mæla hagvísar okkur það að atvinnuleysi fari vaxandi og jafnframt að verðbólgan færist í aukana. Það er rétt að atvinnuleysið er að aukast og er það í takt við aðra hagvísa um minnkandi einkaneyslu, slaka í fjárfestingum og fleira. Það er hinsvegar rangt að verðbólgan sé að vaxa.

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS