Laugardagurinn 23. janúar 2021

Leiðtogafundur ESB í gær: Andstaða við tillögur Merkel og Sarkozy


5. febrúar 2011 klukkan 08:12

Pool
Angela Merkel og Nicolas Sarkozy

Töluverð andstaða kom upp á fundi leiðtoga ESB-ríkjanna í gær við hugmyndum Þjóðverja og Frakka um meiri samræmingu ríkisfjármálastefnu og efnahagsstefnu evruríkjanna en hingað til og sagt var frá hér á Evrópuvaktinni í gær. Starfandi forsætisráðherra Belgíu kvaðst algerlega andvígur hugmyndum Merkel og Sarkozy en Belgar tengja laun við vísitölu. Ráðherrann benti á, að þrátt fyrir það væri verðbólga í Belgíu ekki meiri en í Þýzkalandi. Hollendingar hafa lýst fyrirvara við þessar tillögur en yfirleitt fylgja þeir Þjóðverjum í efnahagsmálum. Forsætisráðherra Hollands segir að Hollendingar vilji ráða yfir launamálum, skattamálum og eftirlaunakerfi sínu.

Írar telja, að samræmingu fyrirtækjaskatta sé stefnt gegn sér. Eistar og Slóvakar vilja halda fast við þá stefnu, sem þessi tvö ríki fylgja um lága skatta. Frá þessum viðbrögðum er sagt í New York Times í dag.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Bólgan vex en hjaðnar samt

Nú mæla hagvísar okkur það að atvinnuleysi fari vaxandi og jafnframt að verðbólgan færist í aukana. Það er rétt að atvinnuleysið er að aukast og er það í takt við aðra hagvísa um minnkandi einkaneyslu, slaka í fjárfestingum og fleira. Það er hinsvegar rangt að verðbólgan sé að vaxa.

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS