
Euobserver, vefmiðill, sem birtir daglegar fréttir um málefni Evrópusambandsins og aðildarríkja þess segir að vaxandi andstaða sé við hugmyndir Þjóðverja og Frakka um samræmingu stefnu aðildarríkjanna og evruríkjanna sérstaklega í ríkisfjármálum, skattamálum, eftirlaunamálum, skuldamálum o.fl. Nú er stefnt að því að leiðtogar evruríkjanna komi saman um miðjan marz til þess að ræða þessar hugmyndir sem euobserver lýsir sem mjög íhaldssömum og að leiðtogafundur ESB-ríkjanna allra verði í lok marz.
Franco Frattini, utanríkisráðherra Ítalíu er einn þeirra, sem lýst hafa óánægju með tillögurnar og að þær skuli runnar undan rifjum Frakka og Þjóðverja. Ítalski utanríkisráðherrann sagði í heimsókn í Prag að hann teldi ekki vera kominn tími á slíka samræmingu. Þetta séu hugmyndir sem öll aðildarríkin þurfi að ræða og enginn einn hópur eigi að leiða þær umræður.
Lúxemborg, Austurríki, Belgía og Spánn hafa lýst efasemdum. Innan framkvæmdastjórnar ESB eru augljóslega skiptar skoðanir. Fulltrúi Pólverja hefur lýst efasemdum, en fulltrúi Finnlands stuðningi.
Evruland er nýlenda Þýskalands
Nú þegar evran er að ná inn á á annan tuginn í vegferð sinni er margt að opinberast og raungerast með öðrum hætti en væntingar stóðu upphaflega til . Flest sem bendir nú til þess að hún muni ekki ná því að fylla tvo tugi og líði undir lok nú á næstu árum. Það dauðastríð mun ekki taka langa...
Finnland: Verður rússneska opinbert tungumál minnihluta
Nú eru um 62 þúsund rússneskumælandi í Finnlandi en gert er ráð fyrir að þeir verði orðnir um 240 þúsund árið 2050. Þetta þýðir að á 40 árum verða rússneskumælandi Finnar jafnmargir og sænskumælandi Finnar eru í dag. Fjöldi rússneskumælandi Finna hefur tvöfaldast á einum áratug. Hér er átt við fólk,...
ESB: Frakkar verða að breyta um stefnu eða sæta refsiaðgerðum ella segir fulltrúi Þýzkalands
Fulltrúi Þýzkalands í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, Guenther Oettinger, sagði í gær að Frakkar yrðu að koma fram umbótum á lífeyriskerfi sínu og frelsisvæða vinnumarkað sinn eða horfast í augu við refsiaðgerðir af hálfu ESB. Í síðustu viku veitti ESB Frakklandi tveggja ára frest til að koma fj...
Þýzka timaritið Der Spiegel segir að það sé að verða til „týnd kynslóð“ í Evrópu. Hin pólitíska elíta á meginlandinu hafi frekar viljað standa í gömlu hugmyndafræðilegu stríði en snúa sér að því verki að koma upp árangursríkri menntun og þjálfun, sem geri ungu fólki í Suður-Evrópu kleift að finna vinnu við sitt hæfi.
Hæðst að skriffinnum ESB vegna ólívuolíunnar - sagt minna á bannið við bognum agúrkum
Ákvörðun nefndar á vegum framkvæmdastjórnar ESB um að frá 1. janúar 2014 skuli ólívuolía borin fram í lokuðum flöskum á borð veitingastaða þykir mörgum hin undarlegasta frá því að lagt var bann við bognum agúrkum sá sínum tíma segir í The Guardian mánudaginn 20. maí. Blaðið segir að hæðst sé að sk...