
Áform evru-landanna um að auka samstarf sitt getur leitt til þess að Danir verði að taka afstöðu til þess í þjóðaratkvæðagreiðslu hvort þeir eigi að standa áfram utan við samstarfið, sagði Lars Lökke Rasmussen, forsætisráðherra Dana, í umræðum á danska þinginu miðvikudaginn 9. febrúar. Hann vísaði þar til tillögu Þjóðverja og Frakka um samkeppnishæfni-sáttmála fyrir evru-löndin.
„Við erum ekki evru-land, þótt krónan okkar sé föst við evruna. Við höfum gert fyrirvara. Nú sjáum við hins vegar meginlínur samstarfs innan evru-svæðisins, sem ná bæði til umfangs og dýptar, og sem kunna mjög líklega að knýja á um mat okkar á eigin stöðu gagnvart evrunni,“ sagði ráðherrann.
Hann lagði þó jafnframt áherslu á að ríkisstjórnin hefði ekki tekið neina ákvörðun um að tekið yrði af skarið um evruna fyrir Dani, sem ekki yrði gert nema í þjóðaratkvæðagreiðslu.
„Það er of snemmt að slá nokkru föstu. Í byrjun mars verður leiðtogafundur evru-ríkjanna, en þegar hefur verið lagður grunnur að einhverjum, sem við, sem myndum ESB-meirihluta á þingi, verðum að hafa náið auga með. Það getur kallað á að við verðum að endurmeta afstöðu okkar til evrunnar og hvenær við tökum afstöðu til hinna dönsku fyrirvara,“ sagði hann.
Ummæli forsætisráðherrans fylgdu í kjölfar þess sem hann sagði þriðjudaginn 8. febrúar um að danska ríkisstjórnin stefndi eindregið að því að hafa sitt að segja um hinn nýja evru-sáttmála – án þess þó að taka afstöðu til þess hvort Danir ætli að gangast undir skilmála sáttmálans þegar hann hefur verið gerður.
Sósíaliski þjóðarflokkurinn og Danski þjóðarflokkurinn hafa sagt að Danir geti ekki tekið á sig skuldbindingar samkvæmt nýjum evru-sáttmála án þess að efnt verði til þjóðaratkvæðagreiðslu um evru-fyrirvarann.
Evruland er nýlenda Þýskalands
Nú þegar evran er að ná inn á á annan tuginn í vegferð sinni er margt að opinberast og raungerast með öðrum hætti en væntingar stóðu upphaflega til . Flest sem bendir nú til þess að hún muni ekki ná því að fylla tvo tugi og líði undir lok nú á næstu árum. Það dauðastríð mun ekki taka langa...
Hæðst að skriffinnum ESB vegna ólívuolíunnar - sagt minna á bannið við bognum agúrkum
Ákvörðun nefndar á vegum framkvæmdastjórnar ESB um að frá 1. janúar 2014 skuli ólívuolía borin fram í lokuðum flöskum á borð veitingastaða þykir mörgum hin undarlegasta frá því að lagt var bann við bognum agúrkum sá sínum tíma segir í The Guardian mánudaginn 20. maí. Blaðið segir að hæðst sé að sk...
Depardieu býr sig undir að eignast kaffihús í Rússlandi
Franski leikarinn Gérard Depardieu sem fékk rússneskan ríkisborgararétt í janúar 2013 var mánudaginn 20. maí opinberlega skráður sem atvinnurekandi í Saransk, höfuðborg Mordóvíu, um 650 km fyrir austan Moskvu. Fréttastofan Ría Novostoi flutti þessi tíðindi og hafði þau eftir Nikolai Borodatsjef, for...
Portúgal: 82,5% vilja rifta samningnum við þríeykið og fá hagstæðari lánskjör
Ný könnun í Portúgal sýnir að almenningur telur að síðustu aðgerðir í ríkisfjármálum landsins, harkalegur niðurskurður með fjöldauppsögnum muni aðeins leiða til verra ástands í landinu en nú ríkir. Þá stendur vilji meirihluta manna til þess að ríkisstjórnin rifti samningum við ESB og Alþjóðagjaldeyrissjóðinn (AGS) til að ná megi betri samningi en þeim sem nú gildir.
Kýpur: Um 60% viðskiptavina eins banka hugsanlegir aðilar að peningaþvætti
Um 60% af viðskiptvinum eins banka á Kýpur eru í áhættuhópi vegna peningaþvættis og villur eru í upplýsingum um nær þriðjung innistæðueigenda samkvæmt því sem fram kemur í skýrslu, sem lekið var á kýpverskri vefsíðu um helgina. Frá þessu segir euobserver. Skýrsla þessi var samin í apríl á vegum Evrópuráðsins og Deloitte að ósk fjármálaáðherra evruríkja.