Mánudagurinn 25. janúar 2021

Bernanke varar enn við of snörpum niðurskurði


10. febrúar 2011 klukkan 09:55

Ben Bernanke

Ben Bernanle, aðalbankastjóri Seðlabanka Bandaríkjanna varaði við því á fundi með fjárlaganefnd fulltrúadeildar Bandaríkjaþings í gær, að of hart yrði gengið fram í niðurskurði ríkisútgjalda og taldi að slíkur niðurskurður gæti stofnað endurreisn bandarísks efnahagslífs í hættu, að því er fram kemur á Reuters.

Báðir flokkar á Bandaríkjaþingi leituðu eftir stuðningi Bernanke við sín sjónarmið. Bankastjórinn tók undir þá skoðun repúblikana að skera ætti niður útgjöld þó með þeim fyrirvara, sem að framan greinir en jafnframt hvatti hann til þess að götum í skattakerfinu, sem hafa komið fyrirtækjum til góða yrði lokað gegn því að skattar á fyrirtæki yrðu lækkaðir eins og Obama Bandaríkjaforstei hvatti til í árlegri ræðu sinni á Bandaríkjaþingi fyrir skömmu.

Ræða Bernanke undirstrikar þann skoðanamun, sem er á milli Bandaríkjastjórnar og Evrópuríkja um hversu langt eigi að ganga í niðurskurði ríkisútgjalda. Á fundinum í Davos kom þessi skoðanamunur skýrt fram í ræðum fjármálaráðherra Breta og Þjóðverja annars vegar og Geithner, fjármálaráðherra Bandaríkjanna hins vegar.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Bólgan vex en hjaðnar samt

Nú mæla hagvísar okkur það að atvinnuleysi fari vaxandi og jafnframt að verðbólgan færist í aukana. Það er rétt að atvinnuleysið er að aukast og er það í takt við aðra hagvísa um minnkandi einkaneyslu, slaka í fjárfestingum og fleira. Það er hinsvegar rangt að verðbólgan sé að vaxa.

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS