Lýsir svipuðum viðhorfum og Merkel og Cameron
Nicholas Sarkozy, forseti Frakklands, hefur lýst þeirri skoðun að hugmyndin um fjölmenningarsamfélög hafi verið mistök. Við viljum franskt Islam – ekki Islam í Frakklandi, sagði forsetinn í sjónvarpsþætti að sögn Irish Times. Ummæli Sarkozy falla í svipaðan farveg og ræða Camerons, forsætisráðherra Breta í Munchen fyrir skömmu og áður hefur Angela Merkel, kanslari Þýzkalands talað á svipuðum nótum. Athygli vekur að Sarkozy lét þessi orð falla í kjölfar þeirra ummæla Marine le Pen, að afstaða Camerons væri stuðningur við þau sjónarmið, sem Þjóðfylkingin í Frakklandi hefði barizt fyrir í 30 ár.
Sarkozy gerir einnig athugasemdir við að múslimar biðjist fyrir á götum úti en Marine le Pen hefur líkt því við „hernám“ með tilvísun til hernáms Frakklands í heimsstyrjöldinni síðari. Forsetakosningar fara fram í Frakklandi á árinu 2012 og Irish Times segir að meta beri ummæli Sarkozy í ljósi þess, að vart verði við vaxandi stuðning við le Pen í þeim kosningum. Frakkar, sem eiga rætur að rekja til Afríku hafa krafið forsetann skýringa á ummælum hans.
Sarkozy hefur áður tengt saman aukinn fjölda innflytjenda og aukna tíðni glæpa í Frakklandi.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.