Dominique Strauss-Khan, forstjóri Alþjóða gjaldeyrissjóðsins gaf til kynna í París um helgina, að hann mundi ekki leita eftir öðru tímabili í starfi hjá AGS. Áður hafði eiginkona hans sagt opinberlega að hún hefði ekki áhuga á að hann héldi áfram þar og hann tekið fram, að sjónarmið hennar mundi vega þungt í ákvörðun hans.
Hins vegar hefur Strauss-Khan ekki tekið af skarið um hvort hann bjóði sig fram til forsetaembættis í Frakklandi á vegum Sósíalista í forsetakosningum, sem fram fara árið 2012. Samkvæmt skoðanakönnunum mundi hann nú vinna slíkar kosningar með yfirburðum með 61% atkvæða en Sarkozy mundi fá um 39% atkvæða.
Wall Street Journal telur hins vegar að ummæli Strauss-Khan og eiginkonu hans séu vandlega undirbúin með það að markmiði að ýta undir áhuga í Frakklandi á framboði hans.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.