Thorbjörn Jagland, framkvæmdastjóri Evrópuráðsins og fyrrverandi forsætisráðherra Noregs, hefur áhyggjur af afleiðingum þess ef Bretar ákveða að hafa að engu Mannréttindadómstól Evrópu í Strassborg sem starfar innan vébanda Evrópuráðsins og hefur það hlutverk að tryggja hollustu aðildarþjóða ráðsins við mannréttindasáttmála Evrópu.
Í viðtali við vefsíðuna EUobserver sem birtist miðvikudaginn 2. mars segir Jagland að stígi Bretar það skref að hafna lögsögu dómstólsins kunni það að leiða til keðjuverkunar til að „grafa undan“ áhrifum hans.
Þingmenn breska Íhaldflokksins sætta sig illa við að hlíta niðurstöðu mannréttindadómstólsins frá 2005 sem leiðir til þess að breyta þarf breskum lögum um kosningarétt fanga. Sett hefur verið á fót þingnefnd í Bretlandi til að huga að setningu sérstakrar mannréttindaskrár fyrir Bretland, sem hafi æðri réttarstöðu en mannréttindasáttmáli Evrópu. Innan Frjálslynda flokksins er andstaða við að ganga gegn dómstólnum í Strassborg.
Breska ríkisstjórnin hefur ekki tekið undir kröfur þingmanna sem vilja segja Breta undan lögsögu mannréttindadómstólsins. Hún hefur hins vegar hvatt til endurskipulagningar á dómstólnum, þar sem tugir þúsunda mála bíða afgreiðslu.
Jagland fagnar áhuga ríkisstjórnarinnar í London á því að breyta reglum um dómstólinn. Þar sé mikil þörf fyrir endurbætur. Huga þurfi að leiðum til að unnt sé að afgreiða kærur til hans innan viðunandi tímafrests auk þess sem nauðsynlegt sé að ræða hve „víðtæk túlkunin á mannréttindasáttmálanum eigi að vera“ eins og segir í viðtalinu við EUobserver.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.