Merwyn King, bankastjóri Englandsbanka sagði á fundi með brezkri þingnefnd, að fjármálakreppan væri sök fjármálafyrirtækjanna og þar með afleiðingar hennar svo sem niðurskurður opinberra útgjalda. Hann kvaðst jafnframt hissa á því að reiði almennings væri ekki meiri en fram hefði komið.
Englandsbankastjóri lýsti þeirri skoðun, að fólk, sem hefði misst vinnuna og eigendur fyrirtækja, sem orðið hefðu gjaldþrota hefðu fulla ástæðu til að finna til reiði og láta mótmæli sín heyrast. Milljarðarnir, sem notaðir hefðu verið til að bjarga bönkunum og þörfin fyrir niðurskurð í útgjöldum væri allt saman á ábyrgð fjármálakerfisins.
„Kostnaðurinn við fjármálakreppuna er borinn af fólki, sem átti engan þátt í henni. Nú þegar þarf að greiða þann kostnað er ég hissa á því, að reiði almennings skuli ekki vera meiri en hún er.“
Í ummælum Kings á nefndarfundinum kom fram, að hann teldi af afleiðingar kreppunnar mundu vara í mörg ár.
Englandsbankastjóri lýsti þeirri skoðun að hverfa ætti frá kerfi, sem miðaði að því að bjarga bönkum, sem lentu í erfiðleikum. Í framtíðinni yrði að gera ráð fyrir því, að bankar gætu farið á hausinn.
Nú mæla hagvísar okkur það að atvinnuleysi fari vaxandi og jafnframt að verðbólgan færist í aukana. Það er rétt að atvinnuleysið er að aukast og er það í takt við aðra hagvísa um minnkandi einkaneyslu, slaka í fjárfestingum og fleira. Það er hinsvegar rangt að verðbólgan sé að vaxa.
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.