ESB-þingmenn hvöttu ríkisstjórn Ungverjalands til þess á fundi í Strassborg fimmtudaginn 10. mars að afnema eða breyta enn frekar umdeildum fjölmiðlalögum sem tóku gildi 1. janúar 2011 og hefur eini sinni verið breytt að ósk framkvæmdastjórnar ESB. Í Búdapest brugðust stjórnmálmenn við á þann veg að saka ESB-þingmennina um „galdraofsóknir“.
Í ályktun sem samþykkt var á ESB-þinginu segir, að „afnema“ beri ungversku fjölmiðlalögin eða endurskoða enn frekar, vegna þess að ÖSE, Öryggissamvinnustofnun Evrópu, hefði gert alvarlegar athugasemdir við lögin, einkum eftirlit með fjölmiðlum.
Stjórnvöld Ungverjalands verða að „endurvekja sjálfstæða stjórn fjölmiðla og binda enda á ríkisafskipti,“ segir í ályktun ESB-þingsins.
ÖSE gaf yfirlýsingu á þriðjudag 8. mars um að enn mætti misnota ungversku lögin til að þagga niður sérsjónarmið í Ungverjalandi.
Ungverska þingið hafði daginn áður, mánudaginn 7. mars, afgreitt breytingu á ákvæðum fjölmiðlalaganna um skráningu fjölmiðla og „jafnvægi“ í fjölmiðlun og brugðist á þann hátt við aðfinnslum Evrópusambandsins.
Við endurskoðun laganna var ekki hróflað við ákvæðum þeirra um fjölmiðlaráð, sem hefur eftirlit með allri fjölmiðlun og er eingöngu skipað nánum samstarfsmönnum Viktors Orbans, forsætisráðherra, að sögn gagnrýnenda.
Zoltan Kovacs, fjarskiptaráðherra Ungverjalands, sagði að ályktun ESB-þingsins sýndi að „galdraofsóknirnar“ héldu áfram og ESB-þingmönnunum væri sama um breytingarnar sem ungverska þingið hefði gert á lögunum. Breytingarnar hefðu tekið mið af óskum frá Neelie Kroes, í framkvæmdastjór ESB. Þeir sem hefðu staðið að ályktun þingsins ættu að ræða við framkvæmdastjórn ESB en ekki ríkisstjórn Ungverjalands.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.