Miðvikudagurinn 3. mars 2021

Árangurslausum makríl-viðræðum í Osló lokið


11. mars 2011 klukkan 21:08

Þriggja daga makríl-viðræðum fulltrúa ESB, Noregs, Íslands og Færeyja lauk í Osló 11. mars, án þess að samkomulag næðist.

Tómas H. Heiðar

„Málin þokast. Bilið milli aðila minnkar en fjarlægðin er enn svo mikil að við náðum ekki samkomulagi,“ sagði Johan Henrik Williams, formaður norsku sendinefndarinnar, við ASP-fréttastofuna.

Fréttastofan rifjar upp að framkvæmdastjórn ESB hafi í janúar sagt að hún mundi hindra löndun íslenskra makrílbáta í ESB-höfnum nema samið yrði um veiðikvóta. Minnir fréttastofan á umsókn Íslands um aðild að ESB í sömu andrá. Íslendingar vilji veiða 146 þúsund lestir af makríl árið 2011 en þeir hafi veitt 130 þúsund lestir árið 2010.

Áður en viðræðurnar hófust í Osló sagði Tómas H. Heiðar, formaður íslensku viðræðunefndarinnar, að Íslendingar yrðu sveigjanlegir varðandi aflamagn ef þeir fengju aðgang að miðum annarra þjóða. Hann minnti jafnframt á þá staðreynd að verðmæti makríls í íslenska hagkerfinu hefði numið 10 milljörðum króna árið 2010.

Williams sagði að nýjar kvótatölur hefðu verið lagðar fram í viðræðunum í vikunni en neitaði að skýra frá þeim.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS