Miðvikudagurinn 3. mars 2021

Orku­stjóri ESB segir Japani standa illa að málum vegna kjarnorkuslyss


16. mars 2011 klukkan 20:17

ESB hefur hvatt yfirvöld Evrópuríkja til að kanna hvort matvæli frá Japan séu geislavirk. Günther Öttinger, orkumálstjóri ESB, hefur gagnrýnt japönsk stjórnvöld fyrir það hvernig þau hafa tekið á kjarnorkuslysinu sem hann sagði að væri nú í „höndum Guðs“.

Günther Öttinger

Viðvörunin vegna matvæla frá Japan var send út þriðjudaginn 15. mars. Þar eru yfirvöld einstakra ríkja hvött til að láta rétt ESB-yfirvöld vita sé geislavirkni á varningi meiri en reglur leyfa. Ekki er talið að um mikið magn af vörum sé að ræða, en ESB flutti inn 9.000 tonn af ávöxtum og grænmeti frá Japan árið 2010 og dálítið af fiski.

Günther Öttinger hefur lýst undrun sinni yfir því hve óhönduglega Japanir hafa staðið að því að binda enda á hörmungarnar í Fukushima nr. 1 orkuverinu.

„Þarna ríkir í raun stjórnleysi,“ sagði Öttinger á fundi með nefnd ESB-þingsins, næsta dag sagði hann að Japanir stæðu frammi fyrir „ragnarökum“ og hann bætti við:

„Næstu klukkustundir geta fleiri hörmungaratburðir gerst sem kunna að ógna lífi fólksins á eyjunni.“ Málið væri nú „í höndum Guðs“. Hann sagðist hafa miklar áhyggjur eftir að hafa séð myndir frá Japan auk þess sem ágreiningur væri milli raforkuyfirvalda í Tokýó og ríkisstjórnar landsins.

Hann sagði um verkfræðilega hæfni að ræða og óhjákvæmilegt væri að endurskoða hug sinn til getu Japana á því sviði.

Orkuráðherrar ESB-ríkjanna hafa verið boðaðir til neyðarfundar mánudaginn 21. mars til að ræða áhrif kjarnorkuslyssins í Japan.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS