Kjósendur Samfylkingarinnar eini sérgreindi hópurinn sem vill aðild
Allir sérgreindir hópar sem spurðir eru um afstöðu til ESB-aðildar Íslands í nýrri könnun eru á móti henni nema þeir sem ætla að kjósa Samfylkinguna. Mest er andstaða meðal bænda og sjómanna, þar er enginn hlynntur aðild. Höfuðborgarbúar, landsbyggðarbúar, iðnaðarmenn, háskólamenntaðir og stjórnendur, allir eru andvígir aðild að ESB auk kjósenda Framsóknarflokks, Sjálfstæðisflokks og vinstri-grænna.
Viðskiptablaðið birtir 17. mars könnun á viðhorfi almennings til Icesave III og aðildar að Evrópusambandinu. 65% þeirra sem tóku afstöðu eru á móti ESB-aðild, 35% fylgjandi. Tæp 15% eru hvorki fylgjandi aðild né andvíg. Naumur meirihluti, 52% er fylgjandi lögunum um Icesave III sem verða borin undir atkvæði þjóðarinnar 9. apríl, 48% eru á móti, vikmörk eru 3,8%.
Um 37% þeirra sem búsettir eru á höfuðborgarsvæðinu vilja ganga í ESB en aðeins 19% á landsbyggðinni. 70% landsbyggðarfólks er á móti aðild að ESB og 47% þeirra sem búa á höfuðborgarsvæðinu. 40% þeirra sem lokið hafa háskólaprófi eru með aðild en 45% á móti.
Andstaða við ESB-aðild er mest meðal bænda og sjómanna 88%. Enginn úr hópi bænda eða sjómanna sem tók þátt í könnuninni lýsti sig fylgjandi aðild að ESB. Meðal iðnaðarmanna er andstaðan rúm 70%.
Helsti stuðningur við aðild að ESB er meðal sérfæðinga 43% en 46% þeirra eru á móti. 38% stjórnenda eru með aðild en 52% á móti.
Um 88% þeirra sem styðja Samfylkinguna vilja aðild að ESB. Er þetta eini sérgreindi hópurinn sem er hlynntur aðild. 80% framsóknarmanna er á móti aðild, 70% sjálfstæðismanna og 60% vinstri-grænna.
Í könnuninni kemur fram að meirihluti sjálfstæðismanna myndi hafna Icesave-lögunum ef kosið yrði nú, 59,1% sjálfstæðismanna eru á móti lögunum en 40,9% með þeim. Stuðningur við Icesave III er mestur í Samfylkingunni 89,9% og 84,4% meðal vinstri grænna, en minnstur meðal framsóknarmanna 25,5%.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.