Wolfgang Schauble, fjármálaráðherra Þýzkalands, segir í viðtali við Guardian, að það hafi verið mistök hjá Þjóðverjum að flytja inn svo marga verkamenn frá Tyrklandi á sjöunda áratug síðustu aldar. Í Þýzkalandi er nú búsettir 3,5 milljónir Tyrkja, sem hafa ekki aðlagast þýzku þjóðfélagi. Sumir þeirra tala ekki þýzku. Schauble segir að mistökin hafi verið fólgin í því að flytja inn ófaglært fólk í stað faglærðs fólks.
Með þessum ummælum hefur Schauble fylgt í kjölfar Angelu Merkel, sem fyrir nokkrum mánuðum sagði að Þjóðverjum hefði mistekizt að byggja upp fjölmenningarlegt samfélag. Hinn nýi innanríkisráðherra Þýzkalands, Hans Peter Friedrich, hefur talað á sama veg svo og Westerwelle, utanríkisráðherra og leiðtogi Frjálsra demókrata, samstarfsflokks Kristilegra í ríkisstjórn.
ESB-aðlögun: Virka peningarnir?
Eitt af því sem fylgdi umsókn Íslands um aðlögun að ESB, var að hér mætti ástunda flest það sem mögulegt væri til að auka stuðning við aðild. Athyglisvert er að íslensk stjórnvöld óskuðu sérstaklega eftir aðstoð við að sannfæra landsbúa um ágæti aðildar. Sem segir að stjórnvöld höfðu ekki trú á að þau „tækifæri“ sem fælust í aðild dygðu til að sannfæra landsmenn.
Stokkhólmur: Kveikt í bílum-íkveikjur í níu borgarhverfum-vandamál tengd innflytjendum
Í gærkvöldi og í morgun var kveikt í bílum í Stokkhólmi og ólæti breddust út til margra hverfa borgarinnar að því er fram kemur í Financial Times, sem segir að þetta hafi gerzt þrjá daga í röð. Lögreglan í Stokkhólmi hefur handtekið einhverja og segir stöðuna flókna vegna fjölda hverfa en bendir á, að staðan sé rólegri í Husby, hverfi, þar sem margi innflytjendur eru saman komnir.
Ítalía: Milljónir hafa ekki efni á að hita heimili sín eða borða kjöt
Milljónir Ítala hafa ekki efni á að hita upp heimili sín eða borða kjöt segir í nýrri skýrslu frá hagstofu Ítalíu, ISTAT. Efnahagslægð, sem staðið hefur í tvö ár hefur komið þungt niður á almennum borgurum, sem ganga meira og meira á sparnað sinn. Fjöldi þess fólks sem stendur svo höllum fæti, sem h...
Ný ríkisstjórn gerir hlé á aðildarviðræðum- nýjar viðræður ekki án þjóðaratkvæðagreiðslu
Af fréttum Morgunblaðsins í dag má ráða að ný ríkisstjórn muni gera hlé á aðildarviðræðum Íslands við Evrópusambandið og að þær verði ekki teknar upp að nýju nema að undangenginni þjóðaratkvæðagreiðslu. Samkvæmt heimildum Evrópuvaktarinnar verður gerð úttekt á stöðu viðræðnanna eins og þær standa nú og stöðu mála innan Evrópusambandsins.
Þrír fyrrverandi framkvæmdastjórar Saab handteknir - grunaðir um skattsvik
Þrír fyrrverandi framkvæmdastjórar Saab-bílasmiðjunnar í Svíþjóð hafa verið handteknir í Svíþjóð vegna gruns um bókhaldsbrot. Olof Sahlgren saksóknari telur að þremenningarnir hafi gerst sekir um alvarlegar tilraunir til að skjóta sér undan skattayfirvöldum.