Nú er talið fyrirsjáanlegt að nýjar aðhaldsaðgerðir portúgölsku ríkisstjórnarinnar, sem Angela Merkel hrósaði henni fyrir fyrir skömmu verði felldar í portúgalska þinginu á morgun, miðvikudag. Fari svo er talið næsta víst að José Socrates, forsætisráðherra muni segja af sér og efnt verði til nýrra kosninga. Forsætisráðherrann ætlaði að fara með samþykki þingsins til fundar við leiðtoga ESB um helgina. Stjórnarandstæðingar hafa hafnað tillögunum. Ríkisstjórnin reyndi að ná samkomulagi við stjórnarandstöðuna en hún krefst kosninga þegar í stað.
Markmiðið með nýjum aðhaldsaðgerðum var að róa fjármálamarkaði. Fari svo að þær falli aukast líkur á að Portúgal óski eftir neyðarláni frá ESB/AGS.
Leiðtogi jafnaðarmanna í Portúgal, Passos Coelho ásakar ríkisstjórnina um að taka á sig skuldbindingar gagnvart ESB án þess að hafa fengið samþykki fyrir þeim heima fyrir.
Nú mæla hagvísar okkur það að atvinnuleysi fari vaxandi og jafnframt að verðbólgan færist í aukana. Það er rétt að atvinnuleysið er að aukast og er það í takt við aðra hagvísa um minnkandi einkaneyslu, slaka í fjárfestingum og fleira. Það er hinsvegar rangt að verðbólgan sé að vaxa.
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.