Seðlabanki Evrópu stendur í vegi fyrir því að ný írsk ríkisstjórn taki upp viðræður við eigendur skuldabréfa írsku bankana um að þeir taki á sig einhvern hluta af töpum bankanna. Eins og fram hefur komið hér á Evrópuvaktinni lýsti fyrri ríkisstjórn Írlands yfir ábyrgð ríkisins á öllum skuldum írskra banka hinn 29. september 2008.
Nú hefur nýja ríkisstjórnin á Írlandi ákveðið að hefja diplómatíska herferð til þess að afla stuðnings við óskir Íra um lækkun vaxta á neyðarláni ESB/AGS. Þeirri ósk var hafnað á leiðtogafundi ESB í marz nema Írar samþykktu að hækka skatta á fyrirtæki, en þeirri kröfu hafa þeir hafnað.
Fyrir nokkrum vikum fór Kenny, forsætisráðherra Írlands í opinbera heimsókn til Bandaríkjanna. Þar tilkynnti Obama, Bandaríkjaforseti, að hann mundi þiggja heimboð Íra og koma í heimsókn til Írlands í maí, en sú heimsókn er talin almenn stuðningsyfirlýsing Bandaríkjanna við Íra.
Nú munu Írar eiga fundi með öllum utanríkisráðherrum ESB-landa og færa rök fyrir kröfu þeirra um vaxtalækkun á neyðarlánum og jafnframt eiga fundi með sendiherrum alllra þessara ríkja.
Nú mæla hagvísar okkur það að atvinnuleysi fari vaxandi og jafnframt að verðbólgan færist í aukana. Það er rétt að atvinnuleysið er að aukast og er það í takt við aðra hagvísa um minnkandi einkaneyslu, slaka í fjárfestingum og fleira. Það er hinsvegar rangt að verðbólgan sé að vaxa.
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.