Miðvikudagurinn 3. mars 2021

Cameron: Fjárkröfur ESB „hlægilegar“-Brussel „veruleikafirrt“ segir Osborne


21. apríl 2011 klukkan 08:58
David Cameron

George Osborne

Í Downingstræti 10 í London, þar sem David Cameron, forsætisráðherra, er til húsa er sagt að kröfur framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um aukin fjárframlög til reksturs ESB séu „hlægilegar“ og í Downingstræti 11, þar sem höfuðstöðvar George Osborne, fjármálaráðherra Breta eru, segir ráðherrann, að embættismennirnir hjá ESB hafi misst tengslin við raunveruleikann. Þetta kemur fram í Daily Telegraph í dag. Talsmenn brezku ríkisstjórnarinnar neituðu í gærkvöldi að gefa nokkuð upp um það, hvort þeir mundu fallast á einhverjar auknar greiðslu og þá hve miklar. Kröfur ESB um aukin fjárframlög frá aðildarríkjum nema um 400 sterlingspundum á hvert heimili í Bretlandi eða um 75 þúsund íslenzkum krónum.

Osborne segir að kröfur Brussel séu algerlega óviðunandi og að embættismenn þar verði að gera sér grein fyrir hvað sé að gerast í aðildarríkjunum, sem leggi nú öll áherzlu á að eyða ekki meiru en þau afla. Brezkir embættismenn segja að stjórnvöld þar muni reyna að skapa samstöðu með Frökkum, Þjóðverjum, Hollendingum og Svíum um að standa gegn fjárkröfum ESB.

Sá meðlimur framkvæmdastjórnarinnar í Brussel, sem hefur sett kröfurnar fram svaraði í sömu mynt í gær. Hann sagði í gær: Það eru einhverjir að gagnrýna okkur, fjárlög Bretlands hafa stækkað, er það aðhald?

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS