William Hague, utanríkisráðherra Bretlands, lýsti Bretlandi sem alþjóðlegu veldi í stefnumarkandi ræðu í fyrradag en gerði lítið úr hlut Evrópusambandsins í alþjóðamálum. Hague lagði áherzlu á, að tengslin við Bandaríkin skiptu mestu máli, í öðru sæti væri Evrópusambandið, Brasilía í því þriðja og Tyrkland í fjórða út frá hagsmunum Bretlands.
Hague lagði áherzlu á að Evrópusambandið ætti ekki að koma fram eins og sambandsríki með sérstaka utanríkisstefnu. Tilraunir af hálfu þess í þá átt mundu enda með ósköpum. Jafnframt undirstrikaði Hague mikilvægi tvíhliða samskipta fyrir Bretland.
Euobserver, sem segir frá ræðu Hagues segir að hún endurspegli hefðbundna stefnu Íhaldsflokksins og fyrirvara flokksins á Evrópusambandinu. Vefmiðillinn bendir á, að Catherine Ashton, utanríkisstjóri ESB, sem er meðlimur Verkamannaflokksins hafi reynt að marka sameiginlega stefnu ESB í utanríkismálum svo sem gagnvart Miðausturlöndum. Hins vegar hafi bæði Bretar og Frakkar farið sínu fram.
Í ræðu sinni sagði Hague að lýðræðishreyfingin í Miðausturlöndum og Norður-Afríku sé mikilvægasta atburðarás á heimsvísu í upphafi 21. aldar, sem muni hafa varanlegri áhrif en árásin á turnana í New York eða fjármálakreppan 2008.
Hague sagði að Bretar mundu efla utanríkisþjónustu sína og opna fleiri sendiráð.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.