Skotar munu á næstu árum ganga til þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálfstætt Skotland. Þetta er niðurstaðan eftir að skozkir þjóðernissinnar fengu meirihluta á skozka þinginu í sveitarstjórnarkosningum, sem fram fóru í Bretlandi sl. fimmtudag. Kosningasigur Skozka Þjóðarflokksins kom á óvart. Flokkurinn hefur haft sjálfstæði Skotlands á stefnuskrá sinni og lofaði því í kosningabaráttunni, að hann mundi efna til þjóðaratkvæðagreiðslu meðal Skota um það. Nú er fyrirsjáanlegt að sú atkvæðagreiðsla mun fara fram einhvern tíma á næstu 5 árum. Í Daily Telegraph í morgun er talið víst að mikill þrýstingur verði innan flokksins á að sú atkvæðagreiðsla fari fram frekar fyrr en síðar.
Skozki þjóðaflokkurinn myndaði minnihlutastjórn, eins konar heimastjórn, á skozka þinginu á síðasta kjörtímabili. Verkamannaflokkurinn hefur lengi haft mikið fylgi í Skotlandi. Daily Telegraph segir, að flokkurinn hafi klúðrað kosningabaráttunni með því að leggja áherzlu á árásir á Íhaldsflokkinn, sem hefur haft veika stöðu í Skotlandi.
Flokkurinn fékk um 45% atkvæða í kosningunum nú og 69 þingmenn af 129.
Financial Times hefur eftir David Cameron, að hann muni berjast gegn sjálfstæði Skotlands til hinztu stundar („evry single fibre that I have“).
Skoðanakannanir benda til þess að einungis þriðjungur Skota styðji sjálfstæði. Financial Times segir, að fjármálafyrirtæki og vopnaframleiðslufyrirtæki í Skotlandi mundu berjast gegn sjálfstæði af ótta við hærri skatta. Blaðið bendir hins vegar á að leiðtogar Skozka Þjóðarflokksins hafi nokkur ár til þess að berjast fyrir sínum sjónarmiðum
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.