Föstudagurinn 26. febrúar 2021

DT: „Skotland væri jafn mikið á hausnum og Ísland“

Sjálfstætt Skotland hefði ekki þolað fall skozku bankanna, segir Daily Telegraph


7. maí 2011 klukkan 07:11

Skotland væri jafn mikið á hausnum og Ísland segir í Daily Telegraph í dag, ef það hefði verið sjálfstætt, þegar tveir stórir skozkir bankar komust í þrot og segir að það sama eigi við um samanburð við Írland. Í grein blaðsins er vísað til þess, þegar Royal Bank of Scotland og HBOS, sem báðir eru skráðir í Skotlandi, komust í þrot. Brezkir skattgreiðendur hafi þurft að greiða 70 milljarða sterlingspunda með þessum bönkum. Greinarhöfundur, sem er Jeremy Warner einn af aðstoðarritstjórum blaðsins, segir, að þetta hafi verið skozk bankakrísa en ekki brezk. Upphæðin, sem bankarnir þurftu að fá hefði verið hærri ef allur íbúafjöldi Bretlands hefði ekki staðið að baki henni en íbúafjöldi Skotlands sé ekki nema helmingur þeirra, sem búa í London.

Blaðið segir ennfremur, að hefði Skotland verið sjálfstætt ríki mætti telja víst að það hefði þá þegar tekið upp evru og þar með engin augljós leið til björgunar. Forsætisráðherra Skotland mundi í slíku tilviki nú þegar hafa farið þess á leit við Englendinga, að þeir tækju Skota upp á sína arma.

Þá segir, að hugmyndir um að bankarnir hefðu verið undir sterkara eftirliti í sjálfstæðu Skotlandi séu áhugaverðar en fáránlegar. Klíkuskapurinn í Edinborg sé jafnvel meiri en í Dublin á Írlandi.

Þá fjallar greinarhöfundur um stöðu Skotlands ef engin bankakrísa hefði orðið og segir að lífskjör í Skotlandi mundu versna mjög ef þeir færu sína eigin leið. Ókeypis háskólanám og ókeyps lyf mundu heyra sögunni til.

Loks segir höfundur greinarinnar að fleiri Evrópulönd eigi við að stríða það sem hann kallar skozkt vandamál. Hann nefnir Ítalíu og að norðurhluti Ítalíu hafi alltaf haldið suðurhlutanum uppi. Og einnig Þýzkaland og samskipti hins gamla Vestur-Þýzkalands við austurhlutann.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS