Innanríkisráðherrar ESB lýstu fimmtudaginn 12. maí stuðningi við breytingar á Schengen-samkomulaginu í þá veru að heimilt verði taka upp tímabundið landamæraeftirlit innan Schengen-svæðsins.
Samkvæmt heimildarmönnum á fundinum lýstu meira en 15 ráðherrar af 25 sem eru í Schengen-ráðherraráðinu stuðningi við breytingar á Schengen-reglunum sem miða að því unnt sé að bregðast við miklum og óvæntum straumi innflytjenda. Ráðherrarnir vilja þó að aðeins sé gripið til landamæraeftirlits ef allar aðrar ráðstafanir reynast árangurslausar.
„Eins og málum er nú háttað er það skoðun meirihlutans ... að ekkert eitt ríki geti tekið slíka ákvörðun. Það gæti dregið dilk á eftir sér í öðrum ríkjum,“ sagði Sandor Pinter, innanríkisráðherra Ungverjalands. Hann var í forsæti á fundinum. „Sambandið verður að segja álit sitt en það mun byggjast á viðræðum milli ríkja.“
Ráðherrann sagði að frjáls för innan ESB/EES svæðisins væri meðal þess helsta sem áunnist hefði með samstarfinu undir merkjum ESB og brýnt væri að standa vörð um þann árangur.
Cecilia Malström, innanríkismálastjóri ESB, benti á nauðsyn þess að skýra reglur um landamæraeftirlit til að koma í veg fyrir einhliða, ósamræmdar ákvarðanir ESB-ríkja. Ráðherrar nokkurra ríkja þar á meðal Þýskalands, Tékklands og Austurríkis töldu að framkvæmdastjórn ESB ætti ekki að skipta sér af ákvörðunum einstakra ríkja um þetta efni.
Framkvæmdastjórn ESB ætlar að leggja fram tillögur um breytingu á Schengen-reglunum á leiðtogafundi ESB í júní.
Heimild: Deutsche Welle, EUobserver.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.