New York Times segir í dag, að Christine Lagarde, fjármálaráðherra Frakka, sé nú talin mjög líklega til að taka við sem forstjóri Alþjóða gjaldeyrissjóðsins eftir afsögn Strauss –Khan. Hún sé þekkt fyrir að hafa afgerandi skoðanir og sé talinn einn áhrifamesti talsmaður Evrópuríkja í alþjóðlegum fjármálum. Þá yrði það styrkur fyrir AGS að kona tæki við forystu sjóðsins í fyrsta sinn. Blaðið segir að Evrópuríkin leggi mikla áherzla á að einhver úr þeirra röðum verði ráðinn. Einn helzti keppinatur Lagarde er talinn fyrrverandi fjármálaráðherra Tyrklands, Kemal Dervis, sem sagður er hafa unnið frábært starf í Tyrklandi.
Lagarde hefur ekki lýst áhuga á starfinu og Sarkozy, Frakklandsforseti hefur ekki tilkynnt að hún sé í framboði til þess. Franskir embættismenn segja hins vegar að engin spurning sé um að hún hefði áhuga á starfinu ætti hún kost á því.
Euobserver segir að Jean-Claude Trichet sé einnig nefndur til sögunnar, svo og Josef Ackerman, aðalforstjóri Detsche Bank og Peer Steinbrueck, fyrrum fjármálaráðherra Þýzkalands.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.