Atvinnuleysi í Bandaríkjunum er komið í 9,1%. Í maí urðu aðeins til 54 þúsund ný störf þar í landi en hagfræðingar höfðu spáð því að þau yrðu 165 þúsund. Að meðaltali hafa orðið til 182 þúsund ný störf í Bandaríkjunum í hverjum mánuði í ár. Financial Times segir í dag að þessar tölur bendi til að hagvöxtur í Bandaríkjunum sé að stöðvast. Hér á Evrópuvaktinni birtist frétt byggð á grein Roberts Reich, fyrrum vinnumálaráðherra í stjórn Clintons, í FT, sem skrifuð var fyrir birtingu þessara talna, þar sem hann taldi hugsanlegt að nýtt samdráttarskeið væri framundan vestan hafs.
FT segir hugsanlegt að náttúruhamfarir og kjarnorkuslys í Japan eigi hér hlut að máli en líklegra sé þó að hækkandi verð á eldsneyti og matvörum valdi hér mestu. Störfum í einkageiranum fjölgaði um 83 þúsund en í opinbera geiranum varð fækkun um 29 þúsund störf. Fyrirtæki í þjónustu fjölguðu starfsmönnum um 80 þúsund en smásalar fækkuðu fólki um 8500.
Stjórnmálaskýrendur í Bandaríkjunum telja að atvinnuleysið sé mestan hættan fyrir Obama í næstu forsetakosningum þar í landi.
Nú mæla hagvísar okkur það að atvinnuleysi fari vaxandi og jafnframt að verðbólgan færist í aukana. Það er rétt að atvinnuleysið er að aukast og er það í takt við aðra hagvísa um minnkandi einkaneyslu, slaka í fjárfestingum og fleira. Það er hinsvegar rangt að verðbólgan sé að vaxa.
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.