Mánudagurinn 18. janúar 2021

Reikningsskila­reglum írskra banka breytt


4. júní 2011 klukkan 10:45

Seðlabanki Írlands vill breyta reglum, sem gilda um reikningsskil írskra banka að því er varðar færslur á áhættusömum útlánum og taka upp fyrri reikningsskilareglur í stað þeirra umdeilanlegu reglna, sem nú gilda á Írlandi og í Bretlandi. Þetta kemur fram í Daily Telegraph í dag. Blaðið segir að sams konar breyting í Bretlandi mundi hafa róttæk áhrif á eiginfjárstöðu og hagnaðartölur brezkra banka.

Blaðið segir sérfræðinga hafa varað við því að bankar í Bretlandi og á Írlandi hafi innleitt alþjóðlegar reglur um reikningsskil með öðrum hætti en bankar í öðrum löndum. Þær alþjóðlegu reglur hafa verið gagnrýndar á þeim forsendum að þær hafi gert bönkum kleift að fela áhættu þar til útlánin væru í raun töpuð. Þessar reglur, sem voru teknar upp 2005 hafi líka gert bönkum mögulegt að dreifa töpum á nokkur ár.

Blaðið segir Seðlabanka Írlands ákveðinn í að framkvæma allsherjar hreingerningu á reikningsskilum írskra banka til þess að endurvekja traust á þeim. Bankinn hefur sagt að lögfræðingar kunni að draga í efa heimild hans til þessara breytinga.

Daily Telegraph bendir á að blaðið hafi síðustu 10 mánuði vakið athygli á þessum umdeilanlegu reikningsskilareglum. Einn sérfræðingur hefur sagt að reglurnar geri bönkum kleift að gefa upp falsaðar hagnaðartölur og ofmeta eiginfjárstöðu.

Nefnd á vegum lávarðadeildar brezka þingsins hefur tekið undir þessa gagnrýni. Patrick Honohan, bankastjóri Seðlabanka Írlands hefur verið gagnrýninn á reikningsskilareglur írskra banka og gerði þær að umtalsefni í ræðu í nóvembermánuði á síðasta ári.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS