Vinstri öfgamenn eru að auka umsvif sín í Þýzkalandi að því er fram kemur í þýzka tímaritinu Der Spiegel í dag. Ritið vitnar í leyniþjónustugögn, sem blaðamenn þess hafi séð sem bendi til þess að á fimm ára tímabili frá 2005 til 2010 hafi orðið um 20% aukning í fjölda þeirra og þeir eru nú taldir 6800 talsins í Þýzkalandi.
Yfirvöld segja að mótmæli vegna fundar G-8 ríkja í Þýzkalandi á árinu 2007 hafi orðið ákveðinn vendipunktur í umsvifum vinstri öfgamanna í landinu. Þessir hópar séu að ná til sín fleira ungu fólki, sem hingað til hafi ekki haft áhuga á slíkri starfsemi.
Þýzka leyniþjónustan er með 767 einstaklinga á skrá, sem eru taldir ofbeldisfullir öfgamenn. Flestir þeirra eru innan 26 ára aldurs og 84% þeirra eru karlar.
Nú er unnið að því að fjölga uppljóstrurum í þeirra hópi til þess að fylgjast betur með athöfnum þeirra.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.