Þriðjudagurinn 26. janúar 2021

Geithner hvetur til strangara eftirlits á alþjóða­vísu


7. júní 2011 klukkan 10:07

Timothy Geithner

Timothy Geithner, fjármálaráðherra Bandaríkjanna, hefur varað eftirlitsaðila með fjármálafyrirtækjum við því að fara of vægt í sakirnar að því er fram kemur í Financial Times í dag. Geithner segir að bankar verði að byggja á meira eigin fé og að það megi ekki reikna út með óraunhæfum hætti. Hann hvetur til víðtæks alþjóðlegs samkomulags um afleiðuviðskipti og leggur sérstaka áherzlu á að Asíuríkin verði aðilar að því samkomulagi. FT segir að Bandaríkjamenn hafi áhyggjur af því að Hong Kong og Singapore reyni að skera sig úr og ná með þeim hætti viðskiptum frá öðrum.

Geithner telur að London hafi reynt með vægum eftirlitsaðgerðum að ná til sín viðskiptum frá New York og Frankfurt með hörmulegum afleiðingum. Hann vill takmarka þá áhættu, sem fylgir fjármálasstarfsemi í Bandaríkjunum en segir að koma verði í veg fyrir að áhættusöm viðskipti flytjist eitthvað annað.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Bréf Víglundar til stjórnskipunar- og eftirlits­nefndar: Leynimakk við kröfuhafa á svig við neyðarlögin

+Hér birtist í heild bréf sem Víglundur Þorsteinsson afhenti í Alþingis­húsinu mánudaginn 10. febrúar. Áður hafði Víglundur skrifað Einari K. Guðfinnssyni forseta Alþingis um sama efni.+ Bréf til stjórnskipunar- og eftirlits­nefndar Alþingis, Hr. formaður Ögmundur Jónasson Í framhaldi af b...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS