Níu mánaða baráttu spænska verktakafyrirtækisins ACS við að ná eignarhaldi á meirihluta í þýska verktakafyrirtækinu Hochtief lauk föstudaginn 17. júní með sigri ACS. Forstjóri Hochtief sagði af sér eftir yfirtökuna.
ACS hefur árum saman verið stærsti hlutafi í Hochtief. Með kaupum á nýjum hlutabréfum tókst félaginu loks að ná 50.16% hlut og fékk þar með meirihluta atkvæða í sinn hlut í stað 43% áður.
ACS lýsti yfir því árið 2010 að það stefndi að meirihlutaeign í Hochtief. Vakti það reiði þýskra keppinauta fyrirtækisins sem óttast að Spánverjar ætli að selja einhvern hluta fyrirtækisins.
Florentino Perez, forstjóri ACS og forseti knattspyrnufélagsins Real Madrid, reyndi að róa áhyggjur stjórnenda hjá Hochtief með yfirlýsingum um að ACS vildi stuðla að meiri hagnaði hjá Hochtief. ACS ber mikla skuldabyrði en Hochtief er skuldlaust.
Hochtief tapaði 169,5 milljónum evra á fyrsta fjórðungi 2011 en áætlanir fyirirtækisins gera ráð fyrir 288 milljóna evra hagnaði á árinu.
Herbert Lütkestratkötter, forstjóri Hochtief, sagði af sér eftir að ACS náði undirtökunum í fyrirtækinu.
Hochtief hefur komið að stórframkvæmdum hér á landi í áranna rás.
Heimild: Deutsche Welle
+Hér birtist í heild bréf sem Víglundur Þorsteinsson afhenti í Alþingishúsinu mánudaginn 10. febrúar. Áður hafði Víglundur skrifað Einari K. Guðfinnssyni forseta Alþingis um sama efni.+ Bréf til stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis, Hr. formaður Ögmundur Jónasson Í framhaldi af b...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.