Föstudagurinn 6. desember 2019

Barroso segir að Grikkjum verði hjálpað úr skuldavandanum


23. júní 2011 klukkan 23:19

Leiðtogar ríkja Evrópusambandsins hafa ítrekað ásetning sinn um að aðstoða Grikki við að komast út úr núverandi skuldavanda þeirra og viðhalda fjárhagslegum stöðugleika innan ESB. José Manuel Barroso, forseti framkvæmdastjórnar ESB, sagði aðildarríkin „hafa eindreginn vilja til að grípa til nauðsynlegra aðgerða“.

Orð Barrosos féllu að kvöldi fimmtudags 23. júní eftir fyrri fundardag leiðtogaráðs ESB í Brussel.

Gríska þingið verður að samþykkja nýja áætlun um samdrátt ríkisúgjalda í næstu viku til að Grikkjum verði látið í té af neyðarláni frá því á síðasta ári. Áætlun stjórnarinnar miðar að því að útgjöld ríkisins minnki um 28 milljarða evra á fimm árum.

Gangi þetta eftir munu Grikkir frá 12 milljarða evra af 110 milljarða neyðarláni frá því í fyrra. Án þessa fjár blasir greiðsluþrot við gríska ríkinu vegna afborgana af lánum um miðjan júlí.

Margir hagfræðingar telja að Grikkland verði gjaldþrota á næstu árum hvað sem gert verði núna, skuldir landsins séu of miklar til að þjóðin standi undir þeim með efnahag sínum.

Að loknum fundinum að kvöldi 23. júní sagði Herman Van Romouy, forseti leiðtogaráðs ESB, að ESB ætlaði að auðvelda Grikkjum að fá fé úr þróunarsjóðum ESB til blása nýju lífi í atvinnulíf þjóðarinnar.

Heimild: BBC

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Bólgan vex en hjaðnar samt

Nú mæla hagvísar okkur það að atvinnuleysi fari vaxandi og jafnframt að verðbólgan færist í aukana. Það er rétt að atvinnuleysið er að aukast og er það í takt við aðra hagvísa um minnkandi einkaneyslu, slaka í fjárfestingum og fleira. Það er hinsvegar rangt að verðbólgan sé að vaxa.

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS