Gert er ráð fyrir að atkvæðagreiðsla í gríska þinginu um seinni hluta löggjafartillagna Papandreous um aðhaldsaðgerðir hefjist um hádegisbilið í dag. Fyrri hluti löggjafarinnar var samþykktur í gær með 155 atkvæðum gegn 138. Einn þingmanna Pasok-flokksins greiddi atkvæði gegn en einn þingmanna stjórnarandstöðunnar greiddi atkvæði með. Aðstoðarforsætisráðherra Grikklands, Pangalos sagði í umræðunum í gær, að ef lagafrumvarpið yrði ekki samþykkt og drakman tekin upp á ný mundi hrætt fólk þyrpast í bankana til að taka peningana sína út, herinn yrði að vernda það með skriðdrekum vegna þess að það yrðu ekki til nægilega margir lögreglumenn til að ráða við stöðuna. Óeirðir yrðu út um allt, búðir yrðu tæmdar og fólk mundi henda sér út um glugga.
Fréttir herma að 31 lögreglumaður hafi særst og 15 mótmælendur. Grísk sjónvarpsstöð sagði að mörg hundruð mótmælendur hefðu orðið sárir og einn mótmælandi sagði að haldið væri uppi stríði með efnavopnum gegn þeim, en lögregla notaði táragas, plastkúlur og fleira til að halda aftur af mótmælendum. Um 500 manns áttu við öndunarerfiðleika að etja. Lögreglan handtók 29.
ESB-aðlögun: Virka peningarnir?
Eitt af því sem fylgdi umsókn Íslands um aðlögun að ESB, var að hér mætti ástunda flest það sem mögulegt væri til að auka stuðning við aðild. Athyglisvert er að íslensk stjórnvöld óskuðu sérstaklega eftir aðstoð við að sannfæra landsbúa um ágæti aðildar. Sem segir að stjórnvöld höfðu ekki trú á að þau „tækifæri“ sem fælust í aðild dygðu til að sannfæra landsmenn.
Ítalía: Beppe Grillo ætlar að knýja fram þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB og evruna
Beppe Grillo, leiðtogi 5-stjörnu-hreyfingarinnar á Ítalíu, sigurvegara kosninganna í febrúar 2013 ætlar að beita sér fyrir söfnun 500.000 undirskrifta til að knýja fram þjóðaratkvæðagreiðslu á Ítalíu um ESB og evruna. Grillo sem er í stjórnarandstöðu á ítalska þinginu ætlar að þvinga fram þjóðaratk...
Dansmærin Ruby breytir framburði sínum í máli sem tengist Berlusconi
Ruby, unga stúlkan frá Marokkó, sem er höfuðpersónan í málaferlum gegn Silvio Berlusconi, fyrrverandi forsætisráðherra Ítalíu, og félögum hans fyrir að hafa greitt fyrir kynlíf með henni sagði fyrir rétti í Mílanó föstudaginn 24. maí að hún hefði búið til sögur um svæsnar kvöldskemmtanir með „Cavali...
Kýpur sakar þríeykið um rangfærslur í skýrslu um peningaþvætti
Kýpversk stjórnvöld saka þríeykið, ESB/AGS/SE um að rangfæra upplýsngar um peingaþvætti í bönkum á Kýpur í nýrri skýrslu, sem sagt hefur verið frá hér á Evrópuvaktinni. Þau segja að ályktanir, sem séu dregnar í skýrslunni séu tilefnislausar.
Barack Obama Bandaríkjaforseti kynnti nýja stefnu í stríðinu gegn hryðjuverkum í ræðu sem hann flutti í National Defense University í Washington fimmtudaginm 23. maí. Þetta stríð gæti ekki staðið „að eilífu“, því yrði að ljúka en baráttan gegn hryðjuverkamönnum að halda áfram. Stefnan hefur verið...