Þriðjudagurinn 21. maí 2013

Innan ESB greiða neytendur tvisvar sinnum fyrir fisk, í verslun og með sköttum


30. júní 2011 klukkan 10:28

Framkvæmdastjórn ESB viðurkennir að fiskneytendur innan ESB borgi tvisvar sinnum fyrir fiskinn sinn vegna rangrar sjávarútvegsstefnu. Milljörðum evra sé sóað með röngum niðurgreiðslum og styrkjum, sem hafi verið ætlað að skapa jafnvægi milli fjölda fiskiskipa innan ESB og stærðar fiskstofna.

Í danska blaðinu Jyllands-Posten segir 30. júní að Maria Damanaki, sjávarútvegsmálastjóri ESB, viðurkenni þessa staðreynd, hún vilji hætta að styrkja úreldingu fiskiskipa og geri tillögu um afnám úreldingarstyrkja við endurskoðun sjávarútvegsstefnu ESB fyrir árið 2013.

„Hingað til höfum við notað skattfé almennings til að stuðla að úreldingu skipa en fækkun þeirra hefur verið alltof lítil,“ segir hún.

Samkvæmt fjárlögum ESB er 6,4 milljörðum evra (106 milljörðum ISK) varið til stuðnings við sjávarútveg innan sambandsins á árunum 2007 til 2013. Stuðningurinn er þó miklu meiri meðal annars vegna þess að einstök ríki leggja einnig fram fé til að styrkja útgerð og sjávarbyggðir.

Í svonefndri grænbók um sjávarútvegsstefnu ESB sem framkvæmdastjórnin sendi frá sér er viðurkennt að þegar árið 2009 hafi opinber útgjöld til sjávarútvegsmála í einstökum löndum numið hærri fjárhæð en andvirði þess fisks sem var landað í höfnum landanna.

„Á einföldu máli þýðir þetta að Evrópumenn greiða næstum tvisvar fyrir þann fisk sem þeir neyta: einu sinni í fiskbúðinni og öðru sinni til skattayfirvalda,“ segir í hinni opinberu grænbók.

Í Jyllands-Posten segir að í nýrri skýrslu komi fram að mörg undanfarin ár hafi fiskiskipum fækkað um 2 til 3% á ári. Á sama tíma hafi ESB veitt styrki til nýsmíði og endurnýjunar á skipum og því sé ljóst að í stað þeirra skipa sem hafa verið úrelt hafi komið ný eða endurnýjuð öflugri skip.

Vegna þessarar þróunar hefur sókn í sífellt veikbyggðari fiskstofna aukist og tekjur útgerða og sjómanna lækkað. Úti á miðunum neyðist menn síðan til að kasta smáfiski í von um að fá stærri og verðmeiri fisk til löndunar. Víða er ástandið þannig að mati ESB að afkastageta fiskiskipaflotans er tvöfalt eða jafnvel þrefalt meiri en fiskstofnar þola.

Jyllands-Posten leitar álits Jespers Raakjærs, prófessors við Álaborgar-háskóla sem hvetur til þess að hætt sé öllum beinum styrkjum til útgerða og sjómanna: „Í hvert skipti sem veittur er styrkur gefur skip meira af sér og öll reynsla sýnir að hagnaðurinn er nýttur til að stækka skipið eða bæta veiðibúnað þess,“ segir hann.

 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Eftir Víglund Þorsteinsson Pistill

Evruland er nýlenda Þýskalands

Nú þegar evran er að ná inn á á annan tuginn í vegferð sinni er margt að opinberast og raungerast með öðrum hætti en væntingar stóðu upphaflega til . Flest sem bendir nú til þess að hún muni ekki ná því að fylla tvo tugi og líði undir lok nú á næstu árum. Það dauðastríð mun ekki taka langa...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Þrír fyrrverandi framkvæmda­stjórar Saab handteknir - grunaðir um skattsvik

Þrír fyrrverandi framkvæmda­stjórar Saab-bílasmiðjunnar í Svíþjóð hafa verið handteknir í Svíþjóð vegna gruns um bókhaldsbrot. Olof Sahlgren saksóknari telur að þremenningarnir hafi gerst sekir um alvarlegar tilraunir til að skjóta sér undan skattayfirvöldum.

Evróvisjón: Utanríkis­ráðherrar Rússlands og Azerbajdsan hinir verstu yfir týndum atkvæðum til stuðnings Rússum

Utanríkis­ráðherrar Rússlands og Azerbajdsan hafa rætt um stigagjöfina í söngvakeppni Evrópu, Evróvisjón.

Finnland: Verður rússneska opinbert tungumál minnihluta

Nú eru um 62 þúsund rússneskumælandi í Finnlandi en gert er ráð fyrir að þeir verði orðnir um 240 þúsund árið 2050. Þetta þýðir að á 40 árum verða rússneskumælandi Finnar jafnmargir og sænskumælandi Finnar eru í dag. Fjöldi rússneskumælandi Finna hefur tvöfaldast á einum áratug. Hér er átt við fólk,...

ESB: Frakkar verða að breyta um stefnu eða sæta refsiaðgerðum ella segir fulltrúi Þýzkalands

Fulltrúi Þýzkalands í framkvæmda­stjórn Evrópu­sambandsins, Guenther Oettinger, sagði í gær að Frakkar yrðu að koma fram umbótum á lífeyriskerfi sínu og frelsisvæða vinnu­markað sinn eða horfast í augu við refsiaðgerðir af hálfu ESB. Í síðustu viku veitti ESB Frakklandi tveggja ára frest til að koma fj...

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS