Mikil spenna er á vinstri kanti grískra stjórnmála í kjölfar þess, að gríska þingið samþykkti aðhaldsaðgerðir Papandreous í síðustu viku. Þingmenn PASOK, flokks Papandreous hafa orðið fyrir aðkasti og árásum víðs vegar um landið, sem talsmenn flokksins rekja til Bandalags róttækra vinstri manna, SYRIZA. Talsmenn þess hafa á móti sakað Sósíalista um að beita aðferðum Joseph Goebbels, áróðursmálaráðherra Adolfs Hitlers.
Í gær þurfti að fylgja einum þingmanna PASOK, Soula Merentiti, úr sjónvarpsstúdói, vegna þess að mótmælendur ruddust inn og höfðu í hótunum við þingmanninn vegna stuðnings hennar við aðgerðir Papandreous. Síðar í gær var ráðist á einn af aðstoðarráðherrum í ríkisstjórninni af sömu ástæðu og enn einn þingmaður PASOK kveðst hafa fengið hótun um að verða drepinn. Á laugardag réðst reiður lýðurinn á Nikos Tsonis, þingmann PASOK í borginni Lamia vegna stuðnings hans við aðgerðirnar.
Frá þessu segir ekathimerini, netútgáfa grísks dagblaðs.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.