Fimmtudagurinn 25. febrúar 2021

Tollleit hefst að nýju við dönsku landamærin gagnvart Þýskalandi


5. júlí 2011 klukkan 10:50

Bifreiðastjórar eru undrandi þegar þeir sjá tollverði við dönsk-þýsku landamærin segir á vefsíðunni bt.dk þriðjudaginn 5. júlí þegar dönsk stjórnvöld hófu að hrinda í framkvæmd samþykkt danska þingsins frá 1. júlí um aukna tollgæslu á landamærunum gagnvart Þýskalandi og Svíþjóð.

bt.dk Claus Fisker
Danskir tollverðir stöðva fyrsta bílinn 5. júlí við þýsku landamærin. Hollensk kona ók bílnum og hélt áfram eftir leitina.

Blaðið segir að „fyrsta fórnarlamb“ tollvarðanna hafi verið hollensk kona. Með fjölgun tollvarða um 30 við landamærin er ætlan danskra yfirvalda að hindra glæpastarfsemi yfir landamærin með svonefndri „stikkprufuaðferð“.

Eftir að hollenska konan hafði stöðvað bifreið sína að fyrirmælum tollvarða opnuðu þeir farangursrými bifreiðarinnar. Kartöfluflögur og hundakex var skoðað en síðan var konunni hleypt áfram inn í Danmörku.

„Þetta er í góðu lagi. Ég hafði heyrt um þetta í útvarpinu,“ sagði konan við bt.dk en hún er í einkaerindum í Danmörku. Hún sagðist oft hafa komið akandi til Danmerkur áður og sér þætti þetta ekki spilla för sinni á neinn hátt.

Annað og verra hljóð var í dönskum ökumanni sem fréttamaður bt.dk hitti að máli. Hann lýsti megnri óánægju með þetta framtak stjórnvalda. „Þetta er eins og hvert annað grín. Venjulega ek ég viðstöðulaust yfir landamærin en nú verð ég að draga mjög úr ferðinni,“ sagði hann á heimferð úr fríi í Tékklandi með konu sinni.

Fulltrúar dönsku Evrópusamtakanna hafa efnt til mótmæla gegn aðgerðum danskra stjórnvalda við landamærin. Erik Boel, formaður samtakanna, ók að landamærunum í BMW-bifreið sinni sem er skreytt með ESB-fána og lagði henni við bækistöð tollvarðanna. Simon Faber, bæjarstjóri í Flensborg, þýskum bæ við dönsku – landamærin, flutti einnig mótmæli við landamærin.

„Þetta er alls ekki í samræmi við óskir okkar. Við hefðum heldur kosið enn meira samstarf – samstarf við nágrannabæi okkar í Danmörku,“ sagði þýski bæjarstjórinn við bt.dk. Hann sagðist vona að tollverðir færu mildum höndum um ökumenn og virtu Schengen-samkomulagið. Ef ekki gæti ástandið orðið eins og áður þegar langar bílalestir mynduðust við landamærin.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS