„Ég verð ekki í framboði sem forsætisráðherraefni í næstu kosningum [2013],“ segir Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, sem verður 75 ára í september í viðtali við vinstrisinnaða dagblaðið La Repubblica föstudaginn 8. júlí.
Í viðtalinu segir Berlusconi að hann vilji að stjórn flokks síns og forysta í ríkisstjórn verði hjá Angelino Alfano, fyrrverandi dómsmálaráðherra. Hann segist ætla að taka þátt í kosningabaráttunni 2013 og „aðstoða“ Alfano. Hann verði hins vegar þá orðinn of gamall til að verða forsætisráðherra.
Berlusconi sætir nú stefnu í þremur dómsmálum. Í kvöldverði með erlendum blaðamönnum í apríl sl. gaf hann til kynna að hann ætlaði að draga sig í hlé í næstu þingkosningum, þótt hann kynni að leiða einhvern framboðslista ætlaði hann sér ekki neitt forysthlutverk.
Frá því í apríl hefur flokkur Berlusconis fengið slæma útreið í sveitarstjórnakosningum. Í byrjun júní fól hann Alfano (41 árs), sem þá var dómsmálaráðherra, stjórn flokks síns. Var það í fyrsta sinn frá því Berlusconi varð virkur þátttakandi í stjórnmálum árið 1994 að hann setti framkvæmdastjóra yfir flokkinn sem hann hefur leitt.
Berlusconi segist ekki hafa áhuga á því að verða forseti Ítalíu. Hann segist vilja sjá Gianni Letta, einn helsta samstarf mann sinn, í því embætti.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.