Miðvikudagurinn 27. janúar 2021

Bænda­samtökin biðja Jón Bjarnason að upplýsa um samningsmarkmið Jóhönnu á fundi með Merkel


17. júlí 2011 klukkan 21:00

Bændasamtök Íslands hafa ritað bréf til Jóns Bjarnasonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, með tilmælum um að hann upplýsi hvaða samningsmarkmið í ESB-aðildarviðræðunum Jóhanna Sigurðardóttir kynnti Angelu Merkel, kanslara Þýskalands, á fundi þeirra í Berlín 11. júlí sl.

Forsætisráðuneytið
Jóhanna Sigurðardóttir og Angela Merkel á blaðamannafundi í Berlín 11. júlí.

Í fréttum eftir fund Jóhönnu og Merkel kom fram að íslenski forsætisráðherrann hefði kynnt hinum þýska viðmælanda sínum samningsmarkmið Íslendinga í aðildarviðræðunum við ESB. Sagðist Jóhanna hafa farið sérstaklega yfir sjávarútvegs- og landbúnaðarmál á fundinum með kanslaranum. Með því hefði hún viljað sýna fram á sérstöðu Íslendinga. Jóhanna taldi sérstaklega mikilvægt að kynna stöðu mála fyrir Merkel vegna sterkrar stöðu Þýskalands innan ESB.

Í bréfi Bændasamtaka Íslands til Jóns Bjarnasonar af þessu tilefni segir meðal annars:

„Af fréttinni [um fundinn í Berlín] má ráða að forsætisráðherra hafi kynnt samningsmarkmið varðandi landbúnað en engin slík markmið hafa verið kynnt opinberlega á Íslandi. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur hins vegar tekið undir lágmarkskröfur Bændasamtakanna sem ályktað var um á sl. Búnaðarþingi og kynnt þær fyrir ríkisstjórn. Bændasamtökin óska eftir því við yður af þessu tilefni að þér aflið upplýsinga um hvaða stefnumarkmið forsætisráðherra kynnti kanslaranum á áðurnefndum fundi þeirra.“

Hinn 22. júní sl. ritaði Jón Bjarnason bréf til Bændasamtaka Íslands og lýsti yfir stuðningi við þá afstöðu þeirra að viðhalda bæri tollvernd fyrir íslenskan landbúnað. Yfirlýsingin gengur þvert á stefnu ESB í landbúnaðarmálum.

Á fundi 19. maí sl. í samninganefnd Íslands við ESB bókaði einn nefndarmanna að yrði haldið fast við kröfuna um tollvernd „ mætti [líta] svo á að með slíkri yfirlýsingu væri verið að stöðva viðræðurnar“.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS