Trond Giske, atvinnumálaráðherra Noregs úr Verkamannaflokknum, segir að efnahagsvandinn innan ESB sýni að tímabært að leggja öll áform um aðild Noregs að ESB til hliðar.
„Ég tel að mjög langur tími muni líða þar til þetta mál komist aftur á dagskrá. Einnig vegna þess að atvinnulífinu er vel borgið innan EES. Þar tökum við þátt í því sem við sjálfir ákveðum og losnum við þá þætti sem ekki hafa neitt gildi fyrir okkur: evruna, sjávarútvegsstefnuna, landbúnaðarmálin og sameiginlega utanríkisstefnu,“ segir Trond Giske, við norska blaðið VG fimmtudaginn 21. júlí.
Hann er ósammála því mati Sigbjørns Johnsens, fjármálaráðherra Noregs, að í því felist of mikil einföldun að segja evruna misheppnaða. Atvinnumálaráðherrann telur að staðreyndir sýni að ekki einu sinni andstæðingar ESB-aðildar hafi verið nægilega svartsýnir um evruna.
„Vissulega heyrðust gagnrýnisraddir frá hagfræðingum sem töldu það aðeins leiða til ófarnaðar að smíða sameiginlega mynt án sameiginlegrar fjármálastefnu. Við í nei-liðinu trúðum því jafnvel ekki að svo illa færi,“ segir Giske.
Formaður í flokki Giske er ósammála. Jens Stoltenberg, forsætisráðherra Noregs, segir að efnahagsvandinn teygi sig út fyrir landamæri ESB og evru-svæðið sem segir að það sé rangt að einangra umræðuna og láta hana snúast um framtíð myntsamstarfsins.
„Bandaríkin, Bretland og Ísland glíma við eða hafa glímt við mikinn halla í ríkisfjármálum og risavaxnar skuldir. Ekkert þessara ríkja býr við evru,“ sagði
Nú mæla hagvísar okkur það að atvinnuleysi fari vaxandi og jafnframt að verðbólgan færist í aukana. Það er rétt að atvinnuleysið er að aukast og er það í takt við aðra hagvísa um minnkandi einkaneyslu, slaka í fjárfestingum og fleira. Það er hinsvegar rangt að verðbólgan sé að vaxa.
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.