Tveimur klukkustundum eftir að fulltrúadeild Bandaríkjaþings samþykkti frumvarp John Boehner, leiðtoga repúblikana í deildinni um að hækka skuldaþak Bandaríkjanna o.fl. með 218 atkvæðum gegn 210 felldi Öldungadeildin, sem demókratar stjórna frumvarpið með 59 atkvæðum gegn 41. Það þýðir að fulltrúar beggja deilda setjast nú yfir það um helgina að reyna að ná samkomulagi fyrir n.k. þriðjudag.
Reuters segir, að stefnt sé að atkvæðagreiðslu í öldungadeildinni á sunnudagsmorgni á tillögum demókrata, sem hafi fellt inn í þær sumar af hugmyndum repúblikana í deildinni og að stefnt sé að heildarsamkomulagi áður en markaðir opni á mánudagsmorgun.
Í Bandaríkjunum er um það deilt, hvort Bandaríkin lendi í greiðslufalli náist samkomulag ekki fyrir þann dag. Bent er á að skv. áætlunum verði tekjur ríkissjóðs Bandaríkjanna mun meiri í ágúst heldur en útgjöld og þar með sé ekki hægt að ganga út frá því sem vísu að um greiðslufall verði að ræða. Sumir gagnrýnendur segja að Obama og Timothy Geithner, fjármálaráðherra hafi gengið of langt í að hóta með yfirvofandi greiðslufalli.,
Repúblikanar vilja hækka skuldaþakið í 6 mánuði eða svo, þannig að málið komi aftur til umræðu í byrjun næsta árs. Demókratar vilja kára það nú fram yfir næstu forsetakosningar, sem verða í nóvember 2012.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.