Laugardagurinn 27. febrúar 2021

Citigroup: Líklegt að lánshæfismat Spánar verði lækkað


30. júlí 2011 klukkan 11:35

Moody´s segir, að það séu ekki bara eigin vandamál Spánar, sem valdi því að matsfyrirtækið sé með lánshæfismat spænska ríkisins til endurskoðunar heldur líka hugsanleg áhrif af björgunaraðgerðunum við Grikkland. Lánshæfismatið er nú Aa2. Fyrirtækið segir að ákvarðanir leiðtogafundar evruríkjanna fyrir 10 dögum hafi ekki dregið úr áhyggjum vegna Spánar heldur jafnvel gert illt verra. Moody´s hefur áhyggjur af möguleikum Spánar til fjármögnunar og á að standa við aðhaldsaðgerðir í framkvæmd vegna veiks hagvaxtar.

Sérfræðingur frá Citigroup segir í samtali við Reuters að líklegt sé að lánshæfismat Spánar verði lækkað en Spánn er fjórða stærsta efnahagskerfi Evrópu. Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn tók í gærkvöldi undir áhyggjur vegna efnahagsstöðu Spánar.

Þá hefur Moddy´s bent á að opnað hafi verið fyrir afskriftir frá einkageiranum og ekki sé ljóst hvenær EFSF( European Financial Stability Facility) fái umboð til aðgerða. Í heild sé áhætta vaxandi fyrir eigendur skuldabréfa ríkja sem séu ýmist mjög skuldsett eða með mikinn fjárlagahalla.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Bólgan vex en hjaðnar samt

Nú mæla hagvísar okkur það að atvinnuleysi fari vaxandi og jafnframt að verðbólgan færist í aukana. Það er rétt að atvinnuleysið er að aukast og er það í takt við aðra hagvísa um minnkandi einkaneyslu, slaka í fjárfestingum og fleira. Það er hinsvegar rangt að verðbólgan sé að vaxa.

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS