Svo virðist sem hóflegrar bjartsýni gæti nú á sunnudagsmorgni um að samkomulag takist í Washington um að lyfta skuldaþaki Bandaríkjanna. Í dag kl. 17.00 að íslenzkum tíma fer fram lykil atkvæðagreiðsla í öldungadeildinni, sem snýr að málsmeðferð en ekki efni máls en viðræður hafa staðið yfir á milli fulltrúa beggja deilda þingsins og Hvíta Hússins, sem benda til þess að einhvers konar samkomulag sé að nást.
Í fréttum Reuters kemur fram, að það kunni að einhverju leyti að vera til skamms tíma en að Hvíta Húsið hafi fyrir sitt leyti fallizt á það til þess að gefa þinginu svigrúm til að ganga frá málinu til lengri tíma. Leiðtogi repúblikana í öldungadeildinni, Mitch McConnell hefur lýst nokkurri bjartsýni á að málið muni leysast.
Að sögn Sunday Telegraph var það McConnell, sem hafði frumkvæði að því að viðræður hófust á ný við Hvíta Húsið. Í sjónvarpsfréttum frá Washington hefur komið fram, að það séu um fimm þingmenn úr báðum deildum, sem að lokum ráði niðurstöðu málsins.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.